Fastus
Fastus
Fastus

Tæknimaður – Fastus expert Akureyri

Hefur þú brennandi áhuga á tækni og þjónustu? Ert þú vélstjóri, rafvirki eða rafeindavirkjameistari sem leitar að spennandi tækifæri á Akureyri?

Fastus Expert leitar að metnaðarfullum, sjálfstæðum og lausnamiðuðum tæknimanni í fjölbreytt og krefjandi starf á Akureyri. Um er að ræða starf sem spannar fjölbreytt og sérhæfð verkefni tengd uppsetningu, viðhaldi og viðgerðum á iðnaðartækjum sem fyrirtækið þjónustar fyrir veitingastaði, stóreldhús og kælikerfi – allt frá ísskápum upp í frystiklefa. Starfið felur í sér bæði verkstæðisvinnu og útköll til viðskiptavina á vettvangi.

Ef þú ert tilbúinn að takast á við spennandi áskoranir, læra nýja hluti og taka virkan þátt í því að veita framúrskarandi þjónustu til viðskiptavina, þá viljum við endilega heyra frá þér!

Um er að ræða 100% starf. Sótt er um í gegnum alfred.is

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Uppsetning, viðhald og viðgerðir á tækjabúnaði sem fyrirtækið selur og þjónustar
  • Þjónusta og bilanagreining á búnaði hjá viðskiptavinum
  • Skráning vinnu og þjónustu í viðhaldskerfi
  • Samskipti við viðskiptavini og erlenda birgja vegna tæknilegra úrlausna
  • Samvinna og samskipti við aðrar starfsstöðvar Fastus í Reykjavík og á Selfossi
  • Önnur tilfallandi verkefni í samráði við stjórnendur
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Sveins- eða meistarabréf í rafvirkjun, rafeindavirkjun eða vélstjóraréttindi
  • Reynsla af viðhaldi og/eða uppsetningu tækjabúnaðar
  • Frumkvæði, jákvætt viðmót og hæfni til að vinna sjálfstætt
  • Góð samskiptahæfni og þjónustulund
  • Bílpróf
  • Góð tölvukunnátta og hæfni til að skrá vinnu í stafrænar lausnir
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Vilji og geta til að sækja tækninámskeið hjá erlendum framleiðendum
Auglýsing birt20. júní 2025
Umsóknarfrestur30. júní 2025
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Hvannavellir 12, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HandlagniPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.RafvirkjunPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)