
Hreinsitækni ehf.
Hreinsitækni ehf., er leiðandi fyrirtæki á sviði sópunar og þvotta á gatnakerfum og gönguleiðum. Félagið var stofnað árið 1976 og hefur starfað óslitið síðan.
Í upphafi árs 2007 keypt félagið Holræsahreinsun ehf. og sameinaði félögin undir nafni Hreinsitækni ehf. Holræsahreinsun ehf. var elsta og öflugasta fyrirtækið á sviði holræsahreinsunar og tengdrar þjónustu. Holræsahreinsun ehf. var stofnað árið 1982, en breytt í hlutafélag árið 1987. Á þeim árum kappkostaði félagið að fylgja eftir þeirri öru þróun sem orðið hafði í starfseminni og eins að vera með bestu og nýjustu tækin til að takast á við hvaða verk sem er og á sem hagkvæmastan hátt.
Í lok árs 2007 keypti félagið Uppdælingu ehf. og sameinaði félögin undir nafni Hreisnitækni ehf. í byrjun árs 2008. Uppdæling ehf. hafði séð um söfnun úrgangsolíu frá verkstæðum, skipum ofl. Einnig hreinsun olíutanka og flutningi á hvers konar spilliefnum. Uppdæling ehf hafði boðið upp á þessa þjónustu allt frá árinu 1993.
Með sameiningu þessara þriggja fyrirtækja er tækjafloti Hreinsitækni ehf. sá öflugasti sem til er á Íslandi í dag. Flotinn er mjög nýlegur og sambærilegur við það besta sem í boði er hvar sem er í heiminum. Hreinsitækni ehf. er nú komið með þá þekkingu og tæki til að geta boðið einstaklingum, fyrirtækjum, sveitar- og bæjarfélögum heildarlausnir í þjónustu á fráveitukerfum og hreinsun á gatna- og gönguleiðum. Starfsmenn félagsins búa yfir víðtækri reynslu og eru fastráðnir um 40.
Hreinsitækni ehf. er með skýra umhverfisstefnu og leggur mikla áherslu á að nota eingöngu umhverfisvæn efni við öll þrif. Á það við hvort sem er þrif á spilliefnum eða almennum og reglubundnum þrifum á gatnakerfum, byggingum ofl

Tækjamenn/konur með meirapróf á Egilsstöðum
Hreinsitækni ehf leitar að öflugum tækjamönnum/konum með meiraprófsréttindi á starfsstöð á Egilsstöðum. Um er að ræða starf á dælubíl/götusóp og önnur tilfallandi störf. Dagvinnutími er 08:00 - 16:00, en yfirvinna er einnig í boði. Um er að ræða framtíðarstarf.
Kostur er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinna á dælubíl/götusóp.
- Umhirða tækja
- Verkefnin eru fjölbreytt og yfirvinna í boði á álagstímum.
- Önnur tilfallandi störf
Menntunar- og hæfniskröfur
- Meiraprófsréttindi C
-
Gerð er krafa um góða íslenskukunnáttu í töluðu og rituðu máli.
-
Stundvísi og reglusemi er skilyrði.
Fríðindi í starfi
- Heilsuræktarstyrkur
Auglýsing birt10. apríl 2026
Umsóknarfrestur30. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Stórhöfði 37, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Almenn ökuréttindiStundvísiVinnuvélaréttindi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)

Lagerstarfsmaður með meiraprófið
Sölufélag garðyrkjumanna ehf.

Vélstjóri/keyrslumaður í fóðurframleiðslu
Fóðurblandan

Borgarnes: Sumarstarfsfólk óskast (Garbage collector/C Driver)
Íslenska gámafélagið ehf.

Kranabílstjóri - Tímabundið starf
Steypustöðin

Campervan Mechanic
Indie Campers

Tækjamenn/konur með meirapróf á Akureyri
Hreinsitækni ehf.

Tækjamenn/konur með meirapróf á Selfossi
Hreinsitækni ehf.

Viðhaldsmaður í verksmiðju Siglufjörður
Primex ehf

Fagkaup óskar eftir vönum bílstjóra með meiraprófsréttindi
Fagkaup ehf

Vanur vélamaður/verkamaður óskast
Klappað og klárt ehf.

Meiraprófsbílstjóri á höfuðborgarsvæðinu - sumarstarf
Pósturinn

Vörubílstjóri óskast
BD vélar ehf