Heilsuvernd Vífilsstaðir
Heilsuvernd Vífilsstaðir
Heilsuvernd Vífilsstaðir

Sumarstarf – Umönnun

Heilsuvernd Vífilsstöðum er skipuð sérhæfðu og metnaðarfullu starfsfólki sem leggur áherslu á faglega og framúrskarandi þjónustu. Á Vífilsstöðum er sem stendur veitt þjónusta til aldraðra sem bíða eftir varanlegri búsetu á hjúkrunarheimili en þjónustan verður þróuð áfram á komandi mánuðum og verður þá lögð áhersla á líknar- og bráðaþjónustu við aldraða.

Við leitum nú að starfsfólki í umönnun til starfa í sumar. Starfshlutfall og vaktir eftir nánara samkomulagi. Við leitum eftir einstaklingum sem hafa jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi og eru tilbúnir að takast á við fjölbreytt verkefni í sterku teymi fagfólks á góðum vinnustað.

Hjá Heilsuvernd leggjum við okkur fram um að skapa glaðlegt og gott vinnuumhverfi, auk þess sem við leggjum mikinn metnað í að veita framúrskarandi þjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Styðja, leiðbeina og hvetja þjónustuþega
  • Taka þátt í félagsstarfi, sbr. upplestri, handverki, leikfimi og hópastarfi
  • Aðstoða við athafnir daglegs lífs s.s. bað, klæðnað og aðrar athafnir
  • Samskipti við aðstandendur notenda
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Lágmarksaldur umsækjenda er 18 ára
  • Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
  • Góð samskiptahæfni
  • Þolinmæði og sveigjanleiki
  • Frumkvæði og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Góð samskiptahæfni
  • Þolinmæði og sveigjanleiki
  • Góð íslenskukunnátta er æskileg
Auglýsing birt20. júní 2025
Umsóknarfrestur6. júlí 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Vífilsstaðavegur 123, 210 Garðabær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar