
Innnes ehf.
Innnes er ein stærsta og öflugasta heildsala landsins á sviði matvöru og eru vörumerki fyrirtækisins neytendum vel kunnug.
Helstu viðskiptavinir Innnes eru stærstu matvöruverslanir landsins, hótel, veitingastaðir, mötuneyti, skólar o.fl.
Hjá Innnes starfa um 200 manns. Fyrirtækið leggur áherslu á að skapa starfsfólki sínu góða vinnuaðstöðu og öflugan starfsanda ásamt því að veita því tækifæri til að ná árangri og vaxa í starfi.
Innnes starfrækir jafnlaunakerfi í samræmi við jafnréttis- og launastefnu fyrirtækisins.
Innnes hvetur alla, óháð kyni, til að sækja um störf hjá fyrirtækinu.
Gildi fyrirtækisins eru gleði og fagmennska.

Sumarstarf í sölu - Norðurland
Innnes leitar að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi til sumarafleysinga við sölu á veitingamarkað og í kaffiþjónustu fyrirtækisins á Norðurlandi.
Um er að ræða krefjandi og fjölbreytt starf þar sem reynir á góða þjónustulund, frumkvæði og hæfni í mannlegum samskiptum. Þetta er frábært tækifæri fyrir einstakling sem hefur áhuga á sölu og vill öðlast dýrmæta reynslu í lifandi og skemmtilegu starfsumhverfi.
Innnes ehf er ein af stærstu matvöruheildverslunum landsins með fjölda þekktra vörumerkja. Starfsaðstaðan er til fyrirmyndar, félagsskapurinn góður og mikill metnaður fyrir þjónustu, þar sem unnið er eftir gildum félagsins: Gleði og fagmennska.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sala og þjónusta við viðskiptavini á veitingamarkaði
- Umsjón með kaffiþjónustu
- Uppbygging og viðhald viðskiptasambanda
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynslu af sölumennsku eða brennandi áhuga á sölu
- Rík þjónustulund
- Hugmyndaauðgi og frumkvæði í starfi
- Stundvísi, samviskusemi og sjálfstæð vinnubrögð
- Lipurð í samskiptum
- Góð tölvukunnátta og íslenskukunnátta
- Lágmarksaldur er 18 ára
Fríðindi í starfi
- Fjölbreytt og krefjandi starf
- Gott starfsumhverfi í reyklausu umhverfi
- Tækifæri til að öðlast reynslu í sölu og þjónustu
Vinnutími er 8:00 -16:00 mánudaga til fimmtudaga, föstudaga er unnið til 15:15.
Auglýsing birt8. apríl 2026
Umsóknarfrestur23. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Tryggvabraut 24, 600 Akureyri
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Viltu spennandi hlutastarf í úthringingum?
Símstöðin ehf

Áfyllingar og framsetning á vörum
Retail Support Ísland ehf.

Sölufulltrúi – framtíðarstarf og sumarstarf
Gæðabakstur

Sölumaður - Sumarstarf og framtíðarstarf
Ó.Johnson & Kaaber

Tesla Customer Experience Specialist (Part-time) - Reykjavik
Tesla

Helgarstarf í timbursölu / Weekend job in timber department
BAUHAUS slhf.

Sölumaður / Afgreiðsla / Vogue Akureyri
Vogue

Starfsfólk óskast/Seeking employees
S4S Premium Outlet

Hvolsvöllur: Sumarstarf í timbursölu með möguleika á framtiðarstarfi
Húsasmiðjan

Hvolsvöllur: Söluráðgjafi í framtíðar – og sumarstörf
Húsasmiðjan

Sölufulltrúi á Akureyri
Avis og Budget

Þjónustufulltrúi
Deluxe Iceland