

Sumarstarf í búsetuþjónustu fyrir fatlað fólk
Kópavogsbær óskar eftir að ráða öfluga starfsmenn í lærdómsríkt starf í búsetuþjónustu fyrir fólk með geðrænar áskoranir, staðsett í efri byggð Kópavogs. Unnið er eftir hugmyndafræði um sjálfstætt líf og þjónandi leiðsagnar.
Mjög spennandi og skemmtilegt starf, þar sem verkefnin eru mjög fjölbreytt. Unnið er í vaktavinnu, viðkomandi þarf að geta unnið morgun, kvöld og helgarvaktir en einnig geta næturvaktir verið í boði.
Við erum að leita að starfsfólki í tímabundið starf í sumar, en með möguleika á hlutastarfi í haust. Gott ef viðkomandi getur hafið störf um miðjan maí. Starfshlutfall er frá 60 -100%
· Veita íbúum stuðning við athafnir daglegs lífs
· Hafa gaman í vinnunni, verða öðrum fyrirmynd og sýna frumkvæði
· Fylgja þjónustuáætlunum og verklagsreglum
· Virkja íbúa til þátttöku í samfélaginu og tómstundum
· Almenn heimilisstörf
· Samskipti við ýmsa þjónustuaðila
· Önnur verkefni skv. Starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
· Reynsla af sambærilegum störfum er æskileg
· Þekking á hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar er kostur
· Þjónustulund og jákvæðni í starfi
· Hæfni í mannlegum samskiptum
· Frumkvæði og samviskusemi
· Sjálfstæði vinnubrögð og sveigjanleiki í starfi
· Íslenskukunnátta skilyrði, A2 tungumálastaðall
· Líkamleg geta til þess að sinna verkefnum á vinnustað
· Ökuréttindi skilyrði
Starfsmenn Kópavogsbæjar fá frítt í sundlaugar bæjarins
Íslenska










