
Sumarstörf - Kópavogsbær
Kópavogsbær býður upp á fjölbreytt sumarstörf á hverju ári fyrir 18 ára og eldri. Í boði eru m.a. störf í Þjónustumiðstöð, garðyrkju, skógrækt, sundlaugum, íþróttavöllum, sumarnámskeiðum fyrir börn, skapandi sumarstörf og á bæjarskrifstofum svo eitthvað sé nefnt.

Sumarstarf á skammtímaheimili fatlaðra
Velferðarsvið Kópavogs óskar eftir sumarstarfsfólki 18 ára og eldri til starfa á skammtímaheimili fyrir ungt fatlað fólk í Kópavogi.
Á heimilinu sækja tíu einstaklingar þjónustu, fimm í einu tvær vikur í senn. Á heimilinu er lögð áhersla á að þjónustunotendur búi sig undir flutninga að heiman. Starfið felst í því að veita aðstoð og leiðbeiningar við allt er lýtur að daglegu lífi þjónustunotenda bæði inni á heimilinu og utan þess.
Um er að ræða sumarstarf í allt að 100% starfshlutfalli eða eftir samkomulagi þar sem unnið er að jafnaði aðra hverja helgi og virka daga á blönduðum vöktum sem eru morgunvaktir, millivaktir, kvöldvaktir og næturvaktir.
Starfið er sumarstarf en með möguleika á áframhaldandi starfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Einstaklingsmiðaður, persónulegur stuðningur við þjónustunotendur.
- Vera þjónustunotendum góð fyrirmynd.
- Stuðla að auknu sjálfstæði þjónustunotenda.
- Almennt heimilishald.
- Samvinna við starfsmenn, aðstandendur og aðra þjónustuaðila.
- Fjölbreytt verkefni innan og utan heimilis.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Nám á framhaldsskólastigi, félagsliði, eða annað sambærilegt nám.
- Reynsla af vinnu með fötluðu fólki er kostur.
- Góð íslenskukunnátta nauðsynleg.
- Hæfni í samskiptum og samstarfi.
- Framtakssemi og sjálfstæði.
- Frumkvæði í starfi.
- Jákvæðni og sveigjanleiki í starfi.
- Geta til að starfa undir álagi.
- Geta til að aðlagast breyttum aðstæðum og tileinka sér nýjar nálganir.
Auglýsing birt26. febrúar 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Hrauntunga 54, 200 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
Almenn ökuréttindiHeiðarleikiHreint sakavottorðJákvæðniMannleg samskiptiSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðStundvísiSveigjanleikiTeymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (11)

Stuðningsfulltrúi óskast í Skammtímadvöl Árlandi 9
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Komdu til liðs við okkur á Andrastaði – vantar fólk í aukavinnu
Andrastaðir

Starfsfólk á Heimili fyrir Börn
Velferðarsvið Mosfellsbæjar - Búsetukjarnar

Starfsmenn óskast í stoðþjónustu við fötluð börn
Akraneskaupstaður

Stuðningsfulltrúi óskast á íbúðakjarna í Grafarvogi
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Starfsmaður í Hamrahlíð Vinna og Virkni
Hamrahlíð Vinna og Virkni

Heimilislæknir - Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana HH
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Hjúkrunarfræðingur - Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana HH
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Aðstoðarkonur óskast í NPA-starf á kvöld- og helgarvaktir tímabundið starf til 30 Nóvember
NPA miðstöðin

Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk - Arnarhraun
Hafnarfjarðarbær

Stuðningsaðili á Velferðarsviði
Kópavogsbær