
66°North
Sjóklæðagerðin hf. betur þekkt sem 66°Norður er eitt elsta framleiðslufyrirtæki Íslands.
Árið 1926 hóf fyrirtækið framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum en seinna bættist við vörulínu fyrirtækisins vinnufatnaður fyrir fólk í landi.
Rætur fyrirtækisins liggja því í framleiðslu sjó- og vinnufatnaðar og er fyrirtækið afar stolt af þeirri arfleifð sinni. Í dag er hönnun og framleiðsla útivistarfatnaðar kjarninn í starfsemi fyrirtækisins sem framleiddur er undir vörumerkinu 66°Norður en fyrirtækið leggur mikið upp úr gæðum vörunnar þar sem eingöngu eru notuð bestu fáanlegu efnin í framleiðsluna.
Í dag starfa um 400 manns hjá 66°Norður og starfar fyrirtækið í fjórum löndum, á Íslandi, í Danmörku, Bretlandi og Lettlandi.

Starfsmaður í vöruhúsi hjá 66°Norður
Vöruhús 66°Norður leitar að jákvæðum og samviskusömum einstakling með ríka þjónustulund í framtíðarstarf. Um er að ræða fullt starf fyrir einstakling sem hefur áhuga á fjölbreyttum verkefnum í öflugu teymi hjá sívaxandi fyrirtæki.
Vinnutími er 8:00-16:00 mánudaga til fimmtudags og 8:00-15:00 á föstudögum.
Unnið verður úr umsóknum jafnóðum. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn vöruhússtörf
- Tínsla og afgreiðsla pantana
- Móttaka, frágangur og skipulagning á vörum
- Bókun reikninga og önnur almenn skráning
- Viðhald á góðu skipulagi og snyrtimennsku í vöruhúsi
- Önnur tilfallandi verkefni samkvæmt þörfum
Menntunar- og hæfniskröfur
Við leitum að einstaklingi sem:
- Er jákvæður, skipulagður og samviskusamur
- Hefur góða þjónustulund og vinnur vel í teymi
- Tekur frumkvæði og sýnir sjálfstæði í vinnubrögðum
- Er lausnamiðaður og vinnur vel undir álagi
- Hefur góða tölvukunnáttu
- Hefur reynslu af sambærilegum störfum
Auglýsing birt7. ágúst 2026
Umsóknarfrestur21. ágúst 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Miðhraun 11, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
AfgreiðslaJákvæðniMannleg samskiptiReikningagerðSamviskusemiTeymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Lyfja Reyðarfirði - þjónusta og ráðgjöf
Lyfja

Lagerstarfsmaður
Blikkás ehf

Kjötkompaní - framtíðarstarf í verslunum
Kjötkompaní ehf.

Bílstjórar - FULLT STARF
Póstdreifing ehf.

Service Agent - KEF airport
Avis og Budget

Smjattpatti leitar að tveimur starfsmönnum á Háteigsveg og Skólavörðuholt
Smjattpatti

Starfsmaður í verslun - BYKO Granda
Byko

Sölufulltrúi í varahlutaverslun
Klettur - sala og þjónusta ehf

Vöruhús / lager
Icetransport

Starfsmaður í afgreiðslu
Bitinn

Nettó Iðavöllum starfsmaður í kjötdeild
Nettó

Sölu- og afgreiðslustarf hjá Lín Design
Lín Design