

Starfsmaður í eldhús - framtíðarstarfs
Fylgifiskar er lítið fjölskyldufyrirtæki sem sérhæfir sig í tilbúnum fiskréttum og meðlæti. Við rekum verslun á Nýbýlavegi 4 í Kópavogi og leggjum mikinn metnað í ferskleika og fagleg vinnubrögð.
Nú leitum við að starfsmanni í eldhúsið í framtíðarstarf (ekki sumarstarf). Viðkomandi þarf að hafa reynslu úr eldhúsi, geta unnið vel undir álagi, verið sjálfstæður og úrræðagóður. Vinnutími er frá 8.00 alla virka daga til kl 15.00. Nema einn dag í viku þegar unnið er frá 8.00 til 18.30.
Starfið felur í sér framleiðslu á fiskréttum, eldun í hádegi og öll störf sem til falla í daglegu amstri í eldhúsinu. Einnig þarf viðkomandi að afgreiða viðskiptavini í verslun okkar.
Viðkomandi verður að hafa reynslu af eldhússtörfum, gott vald á íslensku og helst að vera eldri en 25 ára.
Starfsmannakjör og matur á vinnutíma
Íslenska
Enska










