

Starfsmaður í dagdvöl - Hrafnista Ísafold
Hrafnista Ísafold í Garðabæ óskar eftir að ráða starfsmann í dagdvöl í 60% hlutastarf á virkum dögum frá ágúst/september í afleysingar fyrir fæðingarorlof.
Markmið dagdvalar er að viðhalda sjálfstæði einstaklingsins og rjúfa félagslega einangrun aldraðra. Tuttugu einstaklingar sækja deildina daglega, 16 almenn dagdvöl og 4 sérhæfð fyrir fólk með heilabilun. Áhersla er lögð á að gera einstaklingnum kleift að búa heima og viðhalda sjálfsbjargargetu með því að bjóða upp á örvandi og hvetjandi starfsemi.
Ef þú vilt vinna á vinnustað þar sem áherslur eru m.a. öflugur mannauður, framúrskarandi samskipti, þróun á þjónustu og þar sem nýting og þróun á þjónustueflandi verkfærum eru í brennidepli þá viljum við endilega heyra frá þér.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Styðja, leiðbeina og hvetja skjólstæðinga í leik og starfi
- Taka þátt í utanumhaldi á félagsstarfi, sbr. upplestri, föndri, leikfimi o.þh.
- Aðstoða við umsjón á vinnustofu, þar sem fer fram ýmis konar handavinna þar sem er t.a.m. prjónað, heklað, málað og teiknað
- Samskipti við fjölskyldur skjólstæðinga
- Aðstoða við persónulegt hreinlæti
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð samskiptahæfni
- Kostur ef viðkomandi hefur áhuga á handavinnu og hefur áhuga á að efla/hvetja skjólstæðinga í því starfi
- Þolinmæði og sveigjanleiki
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Reynsla á sambærilegu starfi kostur
Íslenska










