Laugarás Lagoon
Laugarás Lagoon
Laugarás Lagoon

Starfsmaður Fasteignaumsjónar/ Facility Support Staff

Við erum að leita að áreiðanlegum og handlögnum einstaklingi til starfa við fasteignaumsjón. Starfið felur í sér að taka þátt í daglegum rekstri og viðhaldi fasteigna í góðu samstarfi við umsjónarmann fasteigna, með það að markmiði að tryggja að aðstaða, búnaður og umhverfi séu örugg og í góðu standi. Starfið felur einnig í sér umhirðu laugarsvæðis og útisvæða, ásamt einfaldri garðyrkju, svo sem slátt, snyrtingu, hreinsun og almennt viðhald lóða.

Æskilegt er að viðkomandi geti byrjað sem fyrst. Um er að ræða 100% sumarstarf með möguleika á framlengingu.

Vinnutími:

  • Virkir dagar: 07:00–15:00
  • Aðra hverja helgi: 07:00–11:00
  • Að auki er gert ráð fyrir aðstoð við tæmingu á lóninu á kvöld-/næturvöktum um það bil 2x í mánuði.
Helstu verkefni og ábyrgð
  • Aðstoð við daglegan rekstur og viðhald fasteigna
  • Framkvæmd minniháttar viðgerða og tilkynning um stærri verkefni
  • Eftirlit með húsnæði, búnaði og tæknikerfum
  • Aðstoð við þrif, sorphirðu og almennt viðhald
  • Umsjón með verkfærum og birgðum
  • Einföld garðyrkja og umhirða útisvæða (t.d. sláttur, snyrting, hreinsun)
  • Aðstoð við þrif og viðhald laugar-/lónssvæðis
  • Tryggja að öryggis- og heilbrigðisreglum sé fylgt
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af umsjón með húsnæði, tækjum eða búnaði er kostur
  • Góð hæfni til að vinna sjálfstætt, sýna frumkvæði og útsjónarsemi
  • Góð samskiptafærni og hæfni til að vinna í teymi
  • Áreiðanleiki, stundvísi og jákvætt viðmót
  • Líkamleg færni til að sinna fjölbreyttum og praktískum verkefnum
  • Grunnþekking á einföldum viðgerðum og notkun verkfæra er kostur
Fríðindi í starfi
  • Tækifæri til að taka þátt í að skapa glænýjan vinnustað í einstöku umhverfi á Suðurlandi
  • Tækifæri til starfsþróunar
  • Líflegt starfsumhverfi innan ferðaþjónustunnar
  • Aðgang að baðlóninu sem hluta af starfskjörum
  • Afslætti af vörum og þjónustu Laugarás Lagoon
Auglýsing birt7. maí 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Valkvætt
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Laugarás Lagoon, Skálholtsvegur 1, 806 Selfoss
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar