KS
KS
KS

Starfsmaður á rannsóknarstofu

Mjólkursamlag Kaupfélags Skagfirðinga á Sauðárkróki óskar eftir að ráða starfsmann á rannsóknarstofu.

Í Mjólkursamlagi Kaupfélags Skagfirðinga eru framleiddir brauðostar, ferskir ostar, rifinn ostur, viðbit og vörur Vogabæjar. Einnig er félagið Íslenskar Mysuafurðir með starfsstöð innan samlagsins, en þar er unnið mysuprótein.

Helstu verkefni og ábyrgð

Undirbúningur og frágangur á rannsóknarstofum mjólkursamlagsins

Mælingar og skynmat á framleiðsluvörum

Úrvinnsla og skil á rannsóknarniðurstöðum

Gæðaeftirlit í framleiðsludeildum

Menntunar- og hæfniskröfur

Menntun og þekking á sviði líftækni eða matvælaframleiðslu, eða önnur menntun/reynsla er nýtist í starfi

Þekking og reynsla af vinnu á rannsóknarstofu er kostur

Áhugi á matvælum og matvælaiðnaði er mikill kostur

Góð færni í mannlegum samskiptum

Skipulagshæfni og öguð vinnubrögð

Góð íslensku- og enskukunnátta

Góð tölvukunnátta

Fríðindi í starfi

Íþrótta- og heilsustyrkur

Auglýsing birt6. júlí 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Skagfirðingabraut 51, 550 Sauðárkrókur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tölvukunnáttaPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar