Melabúðin
Melabúðin
Melabúðin

Starfsmaður á kassa & áfyllingar

Melabúðin auglýsir eftir starfsmanni í fullt starf.

Við leitum að ábyrgum og glaðlyndum einstaklingi í sælkeraverslun sem leggur metnað sinn í góða þjónustu og er með eitt breiðasta vöruúrval landsins í matvöru.

Við hvetjum jafnt konur sem karla til að sækja um starfið.

Við í Melabúðinni erum þétt og náið teymi og viljum fá einstakling sem passar í hópinn.

Unnið er á vöktum.

Opnunartími Melabúðarinnar er kl.09-20 á virkum dögum og kl.10-20 um helgar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þjónusta við viðskiptavini: Aðstoða viðskiptavini við val á vörum og veita upplýsingar.
  • Afgreiðsla: Sjá um afgreiðslu og kassavinnu.
  • Vöruuppstilling: Uppröðun vara og áfylling hillna og kæla.
  • Þrif og umhirða: Tryggja hreinlæti og snyrtimennsku í versluninni.
  • Önnur verkefni sem stjórnandi felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur

· Metnaður í sölumennsku og upplifun viðskiptavina

· Góð samskiptahæfni: Jákvætt viðmót og færni í mannlegum samskiptum.

· Þjónustulund: Áhugi á að veita framúrskarandi þjónustu.

· Reynsla af þjónustustörfum kostur

· Góð íslenskukunnátta skilyrði

· 18 ára aldurstakmark

Auglýsing birt20. apríl 2026
Umsóknarfrestur30. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Valkvætt
Mjög góð
Staðsetning
Hagamelur 39, 107 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar