Innnes ehf.
Innnes ehf.
Innnes ehf.

Starf í framleiðslu- og merkingardeild

Innnes ehf. leitar að öflugu starfsfólki í fullt starf í framleiðslu- og merkingardeild í glæsilegu vöruhúsi fyrirtækisins að Korngörðum 3 í Reykjavík.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Niðurskurður og pökkun á ávöxtum og grænmeti
  • Merkingar matvæla
  • Standagerð
  • Önnur tilfallandi verkefni í vöruhúsi

Hæfniskröfur

  • Góð íslensku- eða enskukunnátta
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni
  • Stundvísi, frumkvæði, dugnaður og nákvæmni
  • Reyklaus (Innnes er reyklaus vinnustaður)

Vinnutími er 8:00-16:00 mánudaga-föstudaga.

Innnes starfrækir vottað jafnlaunakerfi í samræmi við jafnréttis- og launastefnu fyrirtækisins og við hvetjum áhugasama að sækja um, óháð kyni, uppruna o.s.frv. Stefna Innnes er að vera fjölskylduvænn vinnustaður og boðið er upp á ýmis fríðindi eins og heilsuræktarstyrk, samgöngustyrk, framúrskarandi mötuneyti, öflugt félagslíf og fleira. Heimasíða Innnes er https://innnes.is/

Eingöngu er tekið við umsóknum á heimasíðu Innnes. Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá (CV) á Word eða Pdf formi.

Umsóknarfrestur er til 03. júlí 2024.

Auglýsing birt13. júní 2025
Umsóknarfrestur27. júní 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Korngarðar 3, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.LagerstörfPathCreated with Sketch.ReyklausPathCreated with Sketch.Stundvísi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar