
Starf á rannsóknastofu
Land og skógur óskar eftir skipulögðum og nákvæmum einstakling til starfa á rannsóknarstofu stofnunarinnar í Gunnarsholti.
Starfið er fjölbreytt og felur í sér þátttöku í mikilvægu vísindastarfi þar sem fylgt er skýrum verkferlum og leiðbeiningum.
Þetta er frábært tækifæri fyrir einstakling sem vill leggja sitt af mörkum í faglegu og samhentu teymi - reynsla og menntun skipta minna máli en áreiðanleiki og vilji til að læra.
Land og skógur er þekkingarstofnun sem hefur það meginmarkmið að bæta gróður- og jarðvegsauðlindir þjóðarinnar og stuðla að sjálfbærri landnýtingu, með áherslu á náttúrumiðaðar lausnir. Stofnunin skal vakta auðlindirnar, stuðla að aukinni þekkingu auk þess að virkja og fræða almenning og hagsmunaaðila.
Vinnsla jarðvegs- og gróðursýna á rannsóknarstofu Lands og skógar
- Nákvæmni og góðir skipulagshæfileikar
- Ábyrgðarkennd og sjálfstæð vinnubrögð
- Hæfni til að fylgja leiðbeiningum og verklagsreglum
- Góð samskiptafærni og vilji til að vinna í teymi
- Jákvæðni og sveigjanleiki gagnvart fjölbreyttum verkefnum
- Reynsla af sambærilegu starfi er kostur, en ekki skilyrði
