Hæfingarstöðin Dalvegi
Hæfingarstöðin Dalvegi
Hæfingarstöðin Dalvegi

Starf á hæfingarstöð fyrir fatlað fólk í Kópavogi

Velferðarsvið Kópavogsbæjar óskar eftir starfsmanni til starfa í dagvinnu á hæfingarstöð fyrir fatlað fólk. Óskað er eftir starfsmanni í 80 - 100% starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. október 2025.

Hæfingarstöðin býður uppá dagþjónustu, virkni- og vinnuþjálfun fyrir fatlaða einstaklinga. Vinnustaðurinn leitar að drífandi og áhugasömu starfsfólki til að takast á við fjölbreytt verkefni í sveigjanlegu og skemmtilegu vinnuumhverfi.

Unnið er í skipulagðri hópavinnu og einstaklingsmiðaðri vinnu. Ýmiss þróunarverkefni eru í gangi, til að mynda er vilji til að efla listasmiðju og verkefni tengd smíði, keramik og listsköpun af ýmsu tagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Þátttaka í faglegu starfi.

Einstaklingsmiðaður persónulegur stuðningur við notendur í starfi og virkni.

Þátttaka í starfi fatlaðs fólks.

Menntunar- og hæfniskröfur

Góð almenn menntun.

Reynsla og þekking á starfi með fötluðu fólki.

Stundvísi og samviskusemi.

Góð hæfni í mannlegum samskiptum.

Sveigjanleiki og jákvæðni í starfi.

Starfið getur verið líkamlega krefjandi.

Fríðindi í starfi

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frítt í sund í sundlaugar bæjarins.

Á Dalvegi hæfingu er 36 stunda vinnuvika.

Boðið er upp á mat þrisvar á dag, leiðbeinendum að kostnaðarlausu.

Auglýsing birt4. september 2025
Umsóknarfrestur29. september 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Dalvegur 18, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Umönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)PathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar