Síminn
Síminn
Síminn

Stafrænn hönnuður

Við leitum að metnaðarfullum og reynslumiklum einstaklingi til að ganga til liðs við hönnunarteymi Símans. Stafrænn hönnuður ber ábyrgð á hönnun notendaviðmóta fyrir sjónvarpsviðmót, vefsíður og aðrar stafrænar vörur Símans. Hlutverkið felur í sér að tryggja samræmi í hönnun, skapa notendavæna upplifun og vinna þétt með þverfaglegu teymi í þróunarferlinu.

Hjá Símanum færðu tækifæri til að taka þátt í spennandi verkefnum þar sem nýsköpun, þjónusta og árangur eru í fyrirrúmi. Við bjóðum upp á kraftmikið starfsumhverfi, gott andrúmsloft og tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Hönnun og þróun notendaviðmóta fyrir sjónvarpsviðmót, vefsíður og aðrar stafrænar vörur Símans
  • Taka þátt í að byggja upp hönnunarkerfi og leiðarvísir fyrir samræmda upplifun
  • Náin samvinna með vöruþróunarteymi, forriturum og öðrum hagsmunaaðilum
  • Prófanir og endurbætur á hönnun byggðar á notendarannsóknum og endurgjöf
  • Skilgreining og framsetning á notendaupplifun (UX) í samræmi við þarfir notenda
  • Gerð frumgerða (e. wireframes og mockups) fyrir nýjar vörur og eiginleika
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun í hönnun eða sambærileg menntun er skilyrði
  • Umtalsverð reynsla af stafrænni hönnun
  • Reynsla af helstu hönnunarforritum eins og Figma eða öðrum sambærilegum tólum
  • Góður skilningur á hönnunarferli frá hugmyndavinnu til lokaafurðar er skilyrði
  • Reynsla af notendaprófunum og rannsóknum er kostur
  • Grunnskilningur á forritun sem og þekking á HTML og CSS er kostur
  • Skipulagshæfni, sjálfstæð vinnubrögð og góð samskiptafærni
Fríðindi í starfi
  • Árlegur líkamsræktarstyrkur 
  • Aðgengi að velferðarþjónustu Heilsuverndar 
  • Rafmagnsbílastæði, hjólageymslur og búningsaðstaða 
  • Gleraugnastyrkur 
  • Afslættir af vörum og þjónustu Símans 
  • Samgöngustyrkur vegna vistvænna samgangna til og frá vinnu 
  • Námsstyrkir
Auglýsing birt6. janúar 2026
Umsóknarfrestur18. janúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Ármúli 25, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FigmaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.ÍmyndarsköpunPathCreated with Sketch.Notendaupplifun (UX)PathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar