

Sölu- og þjónusturáðgjafi á sölusviði
Skeljungur leitar eftir þjónustulunduðum einstaklingi í fyrirtækjaþjónustu Skeljungs.
Skeljungur leitar að jákvæðum, metnaðarfullum og þjónustulunduðum einstaklingi til starfa í fyrirtækjaþjónustu á starfsstöð félagsins í Skútuvogi 1, Reykjavík. Starfið er á Sölusviði og snýst um að sinna viðskiptavinum í gegnum síma, veita þjónustu í verslun fyrirtækisins og önnur tilfallandi verkefni.
Starfsemi Skeljungs er á sviði sölu og þjónustu við fyrirtæki tengt fjölorku. Fyrirtækið sér um dreifingu, innkaup og heildsölu á eldsneyti, smurolíum, hreinsi- og efnavörum, áburði sem og öðrum vörum og þjónustuþáttum til fyrirtækja og bænda. Þjónusta og sala til stórnotenda, til útgerða, í flug og verktöku er kjarni starfseminnar.
Hjá Skeljungi starfar fjölbreyttur hópur fólks á öllum aldri. Mannauðurinn er mikilvægasta auðlind Skeljungs. Við berum hag starfsmanna fyrir brjósti og viljum vera í fremstu röð hvað varðar réttindi þeirra, öryggi og starfsumhverfi. Í okkar daglega starfi vinnum við eftir kjarnagildunum okkar, við erum jákvæð, við erum tilbúin í breytingar og við erum metnaðarfull.
• Móttaka, undirbúningur og úrvinnsla sölupantana
• Almenn upplýsingagjöf og ráðgjöf
• Þáttaka í söluverkefnum
• Afgreiðsla úr verslun
• Önnur tilfallandi verkefni
• Framúrskarandi samskiptahæfileikar
• Rík þjónustulund og metnaður til að veita framúrskarandi þjónustu
• Frumkvæði og hæfni til að afla sér þekkingar
• Góða almenn tækni og tölvukunnátta
• Góð íslenskukunnátta
• Lágmarksaldur 20 ára
Íslenska










