

Sölustjóri óskast til Vinnupalla
Vinnupallar leita að kröftugum, skipulögðum og árangursdrifnum sölustjóra.
Þú elskar að finna skapandi lausnir á ófyrirsjáanlegum áskorunum og framúrskarandi þjónusta á hverjum degi sendir þig sælan til svefns.
Sölueðlið kraumar í blóðinu, markmiðin krefjast ögunar og þú nýtur þess að þjónusta, styrkja og efla viðskiptavini sem samstarfsfólk.
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði, sjálfstæði og drifkraftur í starfi eru eiginleikar sem við metum mikils.
Þekking á mannvirkjaiðnaði sem og tengslanet hjálpar, en lærist líka fljótt.
Umsjón með sölustarfi
Umsjón með tilboðs- og áætlanagerð
Rekstur verslunar
Innkaup og samskipti við erlenda birgja
Menntun sem nýtist í starfi
Reynsla af sölustörfum
Reynsla af tilboðs- og áætlanagerð
Reynsla af starfi og/eða þjónustu í mannvirkjaiðnaði
Góð almenn tölvukunnátta og DK færni
Frumkvæði, sjálfstæði og drifkraftur
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
Góð færni í íslensku og ensku í ræðu og riti
Íslenska
Enska










