Sýn
Sýn
Sýn

Sölu- og þjónusturáðgjafi - Verslun Akureyri

Ertu snöll sölumanneskja með framúrskarandi þjónustulund? Þá gæti starf sölu- og þjónusturáðgjafa í verslunum Sýnar verið rétta starfið fyrir þig. Í verslunum Sýnar kynnum við glæsilegt vöruúrval okkar fyrir viðskiptavinum, hjálpum þeim að velja vörur sem henta og aðstoðum við notkun. Sölu- og þjónusturáðgjafar eru með mikið keppnisskap, hafa brennandi áhuga á tækni og nýjungum og eru ávallt viðbúnir að leita að bestu lausnunum fyrir hvern viðskiptavin.

Auglýst er í tvær stöður. Annars vegar fullt starf og hins vegar hlutastarf í verslun okkar á Glerártorgi. Umsækjendur þurfa að geta hafið störf fyrir miðjan ágúst.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af sölu- og þjónustustörfum æskileg
  • Framúrskarandi þjónustulund
  • Ánægja af sölumennsku
  • Snyrtimennska og fáguð framkoma
  • Góð ensku- og tölvukunnátta
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði
  • Metnaður og frumkvæði
  • Stúdentspróf eða sambærileg menntun æskileg

Við hvetjum áhugasama af öllum kynjum til að sækja um starfið. Umsóknarfrestur er til og með 3. júlí.

Einungis er tekið á móti umsóknum í gegnum ráðningavefinn okkar.

Hvað höfum við að bjóða þér?

  • Frábæra vinnufélaga
  • Framúrskarandi vinnuaðstöðu
  • Spennandi verkefni
  • Sveigjanlegt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi
  • Möguleika á starfsþróun
  • Internet- og farsímaáskrift auk sérkjara af sjónvarpsþjónustu
  • Árlegan heilsustyrk
  • Árlegan símtækjastyrk
  • Samgöngustyrk fyrir þá sem nýta sér vistvæna ferðamáta til og frá vinnu
  • Öflugt starfsmannafélag og frábæra vinnustaðamenningu

Hver erum við?

Sýn er leiðandi afl á sviði fjarskipta og fjölmiðlunar á Íslandi. Hjá Sýn sameinum við það besta úr heimi tækni og afþreyingar og breytum hversdagsleikanum í upplifun. Það er betra að vera með Sýn – hvort sem þú ert að horfa, hlusta, vafra eða vinna.

Hjá Sýn leggjum við áherslu á að starfsfólk upplifi vellíðan í vinnu. Það gerum við með því að búa starfsfólki framúrskarandi vinnuaðstöðu, huga að líkamlegri og andlegri heilsu þess og gefa því möguleika á sveigjanleika í vinnu. Við viljum að fólki líði vel í vinnunni, upplifi sig sem hluta af sterkri liðsheild, fái útrás fyrir sköpunarþörf sína og tækifæri til að takast á við verkefni þar sem styrkleikar þeirra fá helst notið sín. Sýn vill þannig stuðla að jákvæðri sjálfsmynd og góðu sjálfstrausti starfsfólks og að starfsfólk sýni frumkvæði í starfi. Við trúum því að fyrirtækinu gangi best þegar starfsfólkið er upp á sitt BESTA.

Auglýsing birt27. júní 2025
Umsóknarfrestur3. júlí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Glerárgata 1, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AfgreiðslaPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.SölumennskaPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar