

Sölu- og þjónusturáðgjafi - Verslun
Ertu snjöll sölumanneskja með framúrskarandi þjónustulund? Þá gæti starf sölu- og þjónusturáðgjafa í verslunum Sýnar verið rétta starfið fyrir þig. Í verslunum Sýnar kynnum við glæsilegt vöruúrval okkar fyrir viðskiptavinum, hjálpum þeim að velja vörur sem henta og aðstoðum við notkun. Sölu- og þjónusturáðgjafar eru með mikið keppnisskap, hafa brennandi áhuga á tækni og nýjungum og eru ávallt viðbúnir að leita að bestu lausnunum fyrir hvern viðskiptavin.
Við erum að ráða í sumarstarf með áframhaldandi hlutastarfi í vetur, tilvalið fyrir skólafólk. Unnið er á tvískiptum vöktum virka daga, eina viku kl.9:00-17:00 og hina kl.10:00-18:00 ásamt fjórða hvern laugardag. Hlutastarfið er hálfur virkur dagur og laugardagur, þriðji hver laugardagur frí.
- Reynsla af sölu- og þjónustustörfum æskileg
- Framúrskarandi þjónustulund
- Ánægja af sölumennsku
- Snyrtimennska og fáguð framkoma
- Góð ensku- og tölvukunnátta
- Góð íslenskukunnátta skilyrði
- Metnaður og frumkvæði
- Stúdentspróf eða sambærileg menntun æskileg
- Frábæra vinnufélaga
- Framúrskarandi vinnuaðstöðu
- Spennandi verkefni
- Sveigjanlegt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi
- Möguleika á starfsþróun
- Internet- og farsímaáskrift auk sérkjara af sjónvarpsþjónustu
- Árlegan heilsustyrk
- Árlegan símtækjastyrk
- Samgöngustyrk fyrir þá sem nýta sér vistvæna ferðamáta til og frá vinnu
- Öflugt starfsmannafélag og frábæra vinnustaðamenningu
Íslenska










