Overcast ehf.
Overcast ehf.
Overcast ehf.

Sölu- og markaðsfulltrúi Overcast

Við leitum að drífandi og metnaðarfullum einstaklingi í starf sölu- og markaðsfulltrúa.

Starfið er fjölbreytt og krefjandi og hentar einstaklingi sem hefur skilning á sölustarfsemi og markaðssetningu og hefur áhuga á að vinna með samheldnum hópi starfsmanna að vaxtarmarkmiðum okkar.

Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni til að gegna starfinu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með nýsölu og vinna að þróun og eftirfylgni sölustefnu
  • Þróa og viðhalda núverandi viðskiptasamböndum
  • Greining á markaðstækifærum og þróun samkeppnismarkaðar
  • Vinna náið með stjórnendum og starfsfólki að stefnumótun, áætlanagerð og vöruþróun
  • Umsjón með miðlum og vefsíðum Overcast
  • Umsjón og stjórnun viðburða sem og þátttaka á viðburðum, ráðstefnum og sýningum
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af sölu- og markaðsmálum
  • Menntun á sviði markaðsfræði, viðskiptafræði eða á öðru tengdu sviði, er kostur
  • Þekking á starfsemi auglýsinga- og/eða hugbúnaðargeirans er kostur
  • Framúrskarandi samskiptahæfileikar
  • Umbóta- og lausnamiðaður hugsunarháttur
  • Sjálfstæð vinnubrögð, drifkraftur, frumkvæði, jákvæðni og áreiðanleiki
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli
  • Góð þekking á samfélagsmiðlum og notkun þeirra í auglýsingatilgangi
Fríðindi í starfi
  • 30 daga sumarfrí
  • Sveigjanlegur vinnutími
  • Framúrskarandi starfsumhverfi
  • Fjölskylduvænn vinnustaður
  • Niðurgreiddur hádegismatur
  • Drykkir og möns á „barnum“
  • Heilsuræktarstyrkur
Auglýsing birt12. júní 2025
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Höfðabakki 9, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AuglýsingagerðPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MarkaðsrannsóknirPathCreated with Sketch.Markaðssetning á netinuPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Sölumennska
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar