
Brekkubæjarskóli
Brekkubæjarskóli er annar tveggja heildstæðra grunnskóla á Akranesi. Nemendur skólans eru um 460 talsins, en starfsmenn um 100. Að auki státar skólinn af þéttriðnu neti stoðþjónustu.
Skólaritari Brekkubæjarskóla
Brekkubæjarskóli óskar eftir að ráða skólaritara til starfa á skrifstofu skólans.
Leitað er að skipulögðum, þjónustulunduðum og jákvæðum einstaklingi sem hefur góða samskiptahæfni og getur unnið sjálfstætt.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Móttaka og þjónusta við nemendur, foreldra, starfsfólk og aðra gesti
- Símsvörun og upplýsingagjöf
- Almenn skrifstofu- og ritarastörf
- Skráningar og umsýsla í upplýsingakerfum skólans
- Undirbúningur og frágangur gagna
- Önnur tilfallandi verkefni á skrifstofu skólans
Menntunar- og hæfniskröfur
- Mjög góð íslenskukunnátta í ræðu og í riti
- Góð tölvukunnátta og reynsla af notkun upplýsingakerfa
- Lipurð í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
- Frumkvæði, skipulagshæfni og nákvæm vinnubrögð
- Hæfni til að vinna sjálfstætt og í teymi
- Reynsla af skrifstofu- eða þjónustustörfum er kostur
- Óbilandi trú á réttindum barna og ungmenna og áhugi á að starfa með þeim og foreldrum þeirra
- Hreint sakarvottorð
Fríðindi í starfi
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Umsóknarfrestur er til og með 16. október næstkomandi og sá sem verður ráðinn þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar veitir Elsa Lára Arnardóttir skólastjóri Brekkubæjarskóla í síma 433-1300 og á netfangið [email protected] og Ásmundur Guðni Haraldsson aðstoðarskólastjóri í síma 433-1300 og á netfangið [email protected]
Auglýsing birt2. október 2026
Umsóknarfrestur16. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Vesturgata 120, 300 Akranes
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar