

Skólaliði óskast í Reykhólaskóla
100% starf frá 1. maí 2026.
Möguleiki á minna starfshlutfalli eða tveir aðilar skipta á milli sín starfinu og ráða í tímabundið starf í maí.
Skólaliði sér um ræstingu á vinnustað. Starfar einnig með nemendum í leik og starfi. Getur einnig verið í frímínútnagæslu. Hann skal hafa góða hæfni í mannlegum samskiptum, hafa skólareglur í heiðri og reglugerð þar að lútandi. Hann sýnir nemendum skóla gott fordæmi, er jákvæður, traustur og samkvæmur sjálfum sér.
· Aðstoðar nemendur inn í bekk eftir þörfum.
· Dagleg ræsting í grunnskóla og matsal samkvæmt starfsáætlun og skipulagi.
· Starfar með nemendum í leik og starfi.
· Aðstoða í matartímum nemenda
· Annast gæslu og eftirlit á göngum, fataklefa og matsal
· Móttaka nemenda og umsjón með þeim að morgni eftir þörfum.
· Frímínútnagæsla innanhúss og utanhúss, gæsla í morgun- og hádegismat eftir því sem þörf er á.
· Almenn gangavarsla og eftirlit með nemendum og búnaði.
· Aðstoða nemendur til og frá skólabíl eftir aðstæðum.
· Baðgæsla við íþrótta- og sundtíma þegar við á.
· Önnur tilfallandi verkefni sem skólastjóri kann að fela starfsmanni
Við leytum að jákvæðum, duglegum og samviskusömum einstakling sem hefur ánægju að vinna með börnum og í skólasamfélagi.
Starfsfólk sem flytur til Reykhólahrepps í fast starf hjá sveitarfélaginu fær flutningsstyrk.
Árskort í Grettislaug.
Íslenska










