Sjúkratryggingar Íslands
Sjúkratryggingar Íslands

Skjalastjóri

Sjúkratryggingar auglýsa laust til umsóknar starf skjalastjóra. Um er að ræða spennandi starf fyrir metnaðarfullan sérfræðing á sviði skjala- og upplýsingamála.

Sjúkratryggingar eru lykilstofnun í íslenska heilbrigðiskerfinu sem tryggir réttindi sjúkratryggðra og stuðlar að jöfnu aðgengi að góðri og hagkvæmri heilbrigðisþjónustu með það að leiðarljósi að vernda heilbrigði. Stofnunin kaupir og greiðir fyrir stóran hluta heilbrigðisþjónustu landsins fyrir hönd ríkisins og annast jafnframt réttindi vegna lyfja, hjálpartækja og ýmissa bóta.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg umsýsla með skjalasafni Sjúkratrygginga, þ.m.t. gerð og viðhaldi málalykils, skjalavistunaráætlunar, geymsluskráa, tilkynningu og afhendingu rafrænna gagnasafna til langtímavarðveislu
  • Umsjón með rafrænu skjalavörslukerfi, þ.m.t. skráningu mála og málsgagna
  • Ráðgjöf og fræðsla til starfsfólks um skjalavörslu og skjalastjórn
  • Mótun innanhússferla, verklags og stefnu í skjalamálum Sjúkratrygginga
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun í upplýsinga- og skjalastjórn
  • Góð þekking og reynsla á opinberri skjalavörslu og skjalastjórn
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta
  • Færni í mannlegum samskiptum, jákvætt viðmót og rík þjónustulund
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum og geta til að leiða umbætur
Auglýsing birt18. ágúst 2026
Umsóknarfrestur28. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Vínlandsleið 16, 113 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Opinber stjórnsýslaPathCreated with Sketch.VandvirkniPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar