Reykjalundur
Reykjalundur
Reykjalundur

Sjúkraþjálfari

Viltu verða hluti af samheldnum og metnaðarfullum hópi sjúkraþjálfara sem starfar á Reykjalundi.

Laus er til umsóknar staða sjúkraþjálfara á Reykjalundi endurhæfingu ehf.

Á Reykjalundi starfa átta þverfagleg meðferðarteymi á tveimur meðferðarsviðum og er starfið því fjölbreytt. Áhersla er lögð á skjólstæðingsmiðaða nálgun og heildræna sýn.

Í þverfaglegum teymum á Reykjalundi starfa auk sjúkraþjálfara, iðjuþjálfar, sálfræðingar, næfingarfræðingar, félagsráðgjafar, íþróttafræðingar, sjúkraliðar, hjúkrunarfræðingar og læknar.

Mötuneyti er á staðnum og aðgengi starfsfólks að heilsurækt, starfsmannaleikfimi og sundlaug.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Hæfniskröfur:

  • Íslenskt starfsleyfi gefið út af Embætti landlæknis.
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Áhugi á þverfaglegri teymisvinnu og samstarfi.
  • Áhugi, metnaður og sjálfstæði í starfi.

Laun greiðast samkvæmt gildandi kjarasamningi FS og SFV (Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu), auk gildandi stofnanasamnings FS og Reykjalundar.

Upplýsingar um starfið veita Björg Hákonardóttir sviðsstjóri þjálfunar, [email protected] og Guðbjörg Gunnarsdóttir mannauðsstjóri [email protected]

Upplýsingar um Reykjalund má finna á heimasíðu Reykjalundar www.reykjalundur.is

Auglýsing birt24. ágúst 2026
Umsóknarfrestur7. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Reykjalundur 125400, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar