
Hrafnista
Hrafnista er stærsta hjúkrunarheimili landsins og alls eru heimilin átta talsins í fimm sveitarfélögum. Þau eru Hrafnista Laugarási, Hraunvangi, Boðaþingi, Ísafold, Skógabæ, Sléttuvegi, Hlévangi og Nesvöllum.
Hjá Hrafnistu starfar öflugur hópur einstaklinga með fjölbreytta menntun, starfsreynslu og með fjölbreyttan bakgrunn.
Ef þú hefur áhuga á að bætast í Hrafnistuhópinn skaltu endilega senda inn umsókn,
Hlökkum til að heyra frá þér.

Sjúkraliðar með viðbótardiplóma - Hrafnista Boðaþing
Hrafnista Boðaþingi óskar eftir metnaðarfullum og skipulögðum sjúkraliða með viðbótardiplóma. Um er að ræða fjölbreytt og skemmtilegt starf sem krefst sjálfstæðra vinnubragða. Markmið starfsins er að veita íbúum hjúkrun í samræmi við sýn og stefnu Hrafnistu.
Framundan eru spennandi tímar í Boðaþingi en fljótlega opnar ný og glæsileg deild og fer þá heimilið úr 44 íbúa heimili á einni deild í tvær deildir með samtals 108 íbúa.
Sjúkraliðar með viðbótardiplóma standa vaktir með hjúkrunarfræðingum þar sem hæfni þeirra og færni er nýtt til fulls miðað við reglugerð.Starfshlutfall er samkomulagsatriði.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vaktstjórn
- Sinnir verkefnum m.v. núverandi reglugerð sjúkraliða með viðbótardiplóma
- Hefur umsjón með ákveðnum verkefnum
- Leiðbeinir og styður við almennt starfsfólk sem sinnir umönnun íbúa, sjúkraliðum og félagsliðum
- Aðstoða við endurhæfingu íbúa
- Teymisvinna
Menntunar- og hæfniskröfur
- Starfsleyfi sjúkraliða og viðbótardiplóma
- Góðir samskiptahæfileikar og jákvætt viðmót
- Sveigjanleiki og sjálfstæð vinnubrögð
- Frumkvæði og metnaður í starfi
- Þekking á RAI mælitækinu er kostur
- Reynsla af starfi með öldruðum er kostur
Auglýsing birt10. júlí 2025
Umsóknarfrestur23. júlí 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn
Staðsetning
Boðaþing 5-13, 203 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (8)

Þjónustufulltrúi
Stoð

Sjúkraliðar / sjúkraliðanemar óskast á Hraunbúðir Vestmannaeyjum
Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Sjúkraliði í sérhæfða dagþjálfun Roðasala
Kópavogsbær

Sjúkraliði óskast til starfa á Sjúkradeild á Ísafirði
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða

Sjúkraliði óskast til starfa á Patreksfirði
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða

Snyrtifræðingur/hjúkrunarfræðingu/sjúkraliði óskast á Húðmeðferðarstofu
HÚÐIN Skin Clinic

Sjúkraliði í blóðsýnatöku
Rannsóknasetrið í Mjódd

Viltu vera á skrá? Sjúkraliði með starfsleyfi
Landspítali