Grænatún
Grænatún
Grænatún

Sérkennslustjóri í Grænatúni

Leikskólinn Grænatún er 3 deilda leikskóli á yndislegum stað við Fossvogsdalinn. Í leikskólanum eru 63 börn á aldrinum 1 – 6 ára.
Einkunnarorð Grænatúns eru leikur og gleði.
Við leggjum áherslu á góðan starfsanda þar sem áhersla er lögð á liðsheild, jákvæð samskipti og lausnamiðaða hugsun.

Hlutverk sérkennslustjóra er að vera faglegur umsjónarmaður sérkennslu í leikskólanum. Í Grænatúni starfar faglegur og framúrskarandi starfsmannahópur sem vinnur saman að gera góðan leikskóla enn betri.

Helstu verkefni og ábyrgð

Ber ábyrgð á og stjórnar skipulagningu, framkvæmd og endurmati sérkennslunnar í leikskólanum ásamt leikskólastjóra
Er faglegur umsjónarmaður sérkennslu í leikskólanum, annast frumgreiningu og ráðgjöf til annarra starfsmanna leikskóla
Vinnur í nánu samstarfi við deildastjóra, foreldra/forráðamenn barna sem njóta sérkennslu í leikskólanum og situr fundi og viðtöl með þeim
Er tengiliður farsældar samkvæmt farsældarlögum

Menntunar- og hæfniskröfur

Leikskólakennaramenntun að lágmarki 90 ein í grunnnámi
Æskilegt er að viðkomandi hafi framhaldsnám í sérkennslufræðum eða öðru því sem nýtist í starfi
Góð íslenskukunnátta - skilyrði
Ábyrgð, áreiðanleiki og jákvæðni
Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi
Góð hæfni í mannlegum samskiptum
Sjálfstæð vinnubrögð
Lágmark tungumálakunnátta er C1

Fríðindi í starfi

Frítt í sund
36 stunda vinnuvika / vinnustytting

Auglýsing birt16. apríl 2026
Umsóknarfrestur30. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Grænatún 3, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar