
Leikskólinn Heiðarborg
Leikskólinn Heiðarborg er fjögurra deilda leikskóli í Seláshverfi, útjaðri Reykjavíkur og í honum dvelja 69 börn á aldrinum 1 - 6 ára. Leikskólinn er opinn virka daga kl. 7:30 - 17:00. Í leikskólastarfinu eru lagðar til grundvallar kenningar Howards Gardners um fjölgreindir ásamt kenningum John Deweys. Leikskólinn er skóli á grænni grein og mikil áhersla lögð á umhverfismennt. Mikið tónlistarlíf er í leikskólanum og hreyfingu er gert hátt undir höfði. Einnig er lögð áhersla á að skapa börnunum öruggt umhverfi, efla þroska þeirra, rækta tjáningar- og sköpunarmátt og styrkja sjálfsmynd þeirra svo þau öðlist öryggi og getu til að leysa málin á friðsamlegan hátt.
Leikskólinn var opnaður sem þriggja deilda leikskóli 1990 en stækkaður í fjórar deildir 1996. Á deildunum Bala og Laut eru 3 - 6 ára börn, á Lundi eru þau 2 - 3 ára en yngstu börnin eru á Brekku og geta byrjað þar eins árs. Leikskólinn er staðsettur nálægt Rauðavatni, Elliðaárdalnum og hesthúsunum í Víðidal og njótum við samvista við þessar náttúruperlur í gönguferðum og útinámi.
Leikskólastjóri er Jóhanna Benný Hannesdóttir og aðstoðarleikskólastjóri Elísabet Ragnarsdóttir.

Sérkennsla í leikskólanum Heiðarborg
Í leikskólanum Heiðarborg við Selásbraut í Árbæ starfar öflugt sérkennsluteymi sem sinnir þeim börnum sem þurfa auka aðstoð. VIð þurfum að stækka teymið okkar sem nemur hálfum starfsmanni. Ert þú sá einstaklingur? Starfið er laust nú þegar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að vinna að gerð einstaklingsnámskrá og fylgja henni eftir.
- Að eiga samstarf við foreldra, fagaðila og aðra ráðgjafa.
- Að sinna þeim verkefnum er varða sérkennslu og öðrum störfum innan leikskólans, sem yfirmaður úthlutar.
- Að vera stuðningur fyrir viðkomandi deild.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Nám í hagnýtri atferlisgreiningu, þroskaþjálfamenntun eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Reynsla af vinnu með börnum sem þurfa sérkennslu
- Lipurð í samskiptum
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum skilyrði
Fríðindi í starfi
- Sund- og menningarkort
- Heilsuræktarstyrkur
- Samgöngustyrkur
- Frítt fæði á vinnutíma
Auglýsing birt16. september 2026
Umsóknarfrestur30. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Selásbraut 56, 110 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Leikskólinn Lækur óskar eftir leikskólakennara
Lækur

Laus staða leikskólakennara
Leikskólinn Hádegishöfði Fellabæ

Forfallakennari í Hólabrekkuskóla
Hólabrekkuskóli

Leikskólakennari í Maríuborg
Leikskólinn Maríuborg

Sérkennsla/atferlisfræðingur í Ægisborg
Leikskólinn Ægisborg

Leikskólakennari/leiðbeinandi í Ægisborg
Leikskólinn Ægisborg

Stuðningsfulltrúi óskast á miðstig
Kársnesskóli

Heiðarskóli - Umsjónarkennari á miðstigi
Reykjanesbær

Kraftmikill og metnaðarfullur deildarstjóri óskast í afleysingu í 1 ár frá áramótum
Leikskólinn Sjáland

Aðstoðarforstöðumaður í frístundaheimili
Frístundamiðstöðin Miðberg

Leikskólakennari eða leiðbeinandi í leikskóla
Brákarborg

Kennari – Leikskólinn Tjarnarás
Hafnarfjarðarbær