
Náttúrufræðistofnun
Á Náttúrufræðistofnun starfa tæplega 80 manns við rannsóknir, kortlagningu og vöktun á náttúru landsins. Starfsandi á stofnuninni er góður og er leitast við að bjóða fjölskylduvænan vinnustað. Við ráðningar í störf hjá Náttúrufræðistofnun er tekið mið af jafnréttisstefnu stofnunarinnar. Starfsstöðvar Náttúrufræðistofnunar eru fimm, í Garðabæ, á Akranesi, við Mývatn, á Breiðdalsvík og Akureyri.
Sérfræðingur í vistgerðakortlagningu
Náttúrufræðistofnun auglýsir laust tímabundið fullt starf sérfræðings á grasafræðisviði til að taka þátt í kortlagningu vistgerða landsins. Starfið felur í sér fjölbreytta og umfangsmikla vettvangsvinnu ásamt vinnslu landupplýsinga í nánu samstarfi við aðra sérfræðinga stofnunarinnar.
Sérfræðingurinn tekur þátt í undirbúningi og framkvæmd gróðurmælinga, skráningu plantna og umhverfisaðstæðna og gerð og uppfærslu vistgerðakorta. Starfið hentar einstaklingi sem vill sameina vettvangsvinnu og kortagerð.
Starfsstöð getur verið á Akranesi, Akureyri eða í Garðabæ.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þátttaka í skipulagningu, undirbúningi og framkvæmd vettvangsvinnu.
- Gróðurmælingar, meðal annars sniðmælingar, greining og skráning tegunda æðplantna og skráning upplýsinga um vistgerðir og umhverfisaðstæður.
- Söfnun staðsetningargagna og viðmiðunarpunkta til kortlagningar og sannprófunar vistgerðakorta.
- Vinnsla landupplýsinga í QGIS með hliðsjón af vettvangsathugunum, loftmyndum, gervitunglamyndum og niðurstöðum annarra sérfræðinga.
- Gerð og uppfærsla vistgerðakorta
- Gæðaeftirlit með vettvangsgögnum, landupplýsingum og kortum.
- Frágangur korta, framsetning niðurstaða og þátttaka í skýrslugerð.
- Önnur tilfallandi verkefni á fagsviðinu í samráði við yfirmann.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Meistaragráða í líffræði, vistfræði eða skyldum greinum
- Marktæk reynsla af gróðurrannsóknum og vettvangsvinnu.
- Haldgóð þekking á íslenskri flóru.
- Færni og reynsla af notkun QGIS og vinnslu landupplýsinga.
- Nákvæmni í skráningu, meðferð og yfirferð gagna.
- Góð íslensku- eða enskukunnátta í ræðu og riti.
- Sjálfstæði í störfum og skipulögð vinnubrögð.
- Lipurð í mannlegum samskiptum og góð samstarfshæfni.
- Gild ökuréttindi og hreint sakavottorð.
Auglýsing birt20. október 2026
Umsóknarfrestur30. október 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (1)
