

Sérfræðingur á safni
Auglýst er eftir sérfræðingi til starfa á listasafn Svavars Guðnasonar. Um fullt starf er að ræða við Menningarmiðstöð Hornafjarðar og er um staðbundið starf að ræða.
Menningarmiðstöð Hornafjarðar rekur þverfaglega stofnun sem sér meðal annars um fjögur söfn sveitarfélagsins, lista-, byggða-, bóka- og héraðsskjalasafn. Starfið er fjölbreytt og felur í sér þátttöku í verkefnum þvert á starfsemi Menningarmiðstöðvarinnar, meðal annars við sýningar, viðburði, miðlun og starfsemi safna. Jafnframt er gert ráð fyrir að viðkomandi taki þátt í öðrum verkefnum Menningarmiðstöðvarinnar eftir þörfum. Áhersla er lögð á að safnið og Menningarmiðstöðin öll auðgi samfélagið og sé í virku samtali við íbúa og hagaðila.
Laun eru greidd samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst eða samkvæmt samkomulagi.
- Ábyrgð á faglegu starfi Listasafns Svavars Guðnasonar og daglegri umsjón þess í samráði við forstöðumann
- Umsjón með sýningarrýmum, safnkosti og varðveislu á sviði listasafnsins
- Skipulagning og uppsetning sýninga og samskipti við listamenn, söfn og aðra samstarfsaðila
- Skrif og eftirfylgni styrkumsókna
- Þátttaka í fjölbreyttum verkefnum Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar, svo sem sýningum, viðburðum, miðlun og öðru menningarstarfi þvert á söfn og svið stofnunarinnar
- Önnur tilfallandi verkefni og verkefnastjórn á vegum Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar
- Menntun sem nýtist í starfi eða yfirgripsmikil reynsla á sviði safna og menningarstarfa
- Reynsla af sambærilegum störfum eða verkefnastjórnun
- Reynsla af umsóknum og eftirfylgni styrkja
- Góðir skipulagshæfileikar og lipurð í samskiptum
- Góð tök á íslensku og ensku í ræðu og riti
- Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
- Þekking á myndlist í sveitarfélaginu kostur
- Frítt í sund og heilsustyrkur starfsmanna sveitarfélagsins
Íslenska
Enska