
Norðurál
Norðurál, sem rekur álver á Grundartanga, var valið Umhverfisfyrirtæki ársins 2022 af Samtökum atvinnulífsins. Framþróun grænnar álframleiðslu mun hafa raunveruleg áhrif á útblástur gróðurhúslofttegunda á heimsvísu. Íslenski áliðnaðurinn er ein stærsta útflutningsgrein landsins og ein af grunnstoðum íslensks efnahagslífs.
Álið okkar, Natur-Al, skilur eftir sig eitt minnsta kolefnisspor í heimi. Þegar litið er á ferlið í heild, frá vinnslu hráefna til afhendingar fullunninnar vöru, nemur kolefnisspor áls frá Norðuráli einungis um fjórðung af heimsmeðaltalinu. Við stefnum að því að verða fyrsta álver í heiminum sem framleiðir kolefnishlutlaust ál.
Hjá Norðuráli leggjum við áherslu á virðingu fyrir mannréttindum, samfélagi og umhverfi. Öryggi, heilbrigði og vellíðan starfsfólks er í fyrirrúmi og lögð er áhersla á jafnan rétt starfsfólks til starfsframa, launa og réttinda.
Hjá Norðuráli starfa um 600 fastráðin, þar af 350 í vaktavinnu, 150 sérfræðingar með fjölbreytta menntun og 100 í iðnaðarstörfum. Til viðbótar eru um 150 í afleysingum.
Norðurál er ASI vottað sem staðfestir að fyrirtækið stenst ítrustu kröfur um samfélagslega ábyrgð, heiðarlega viðskiptahætti, umhverfisvænt hráefni og framleiðslu. Gæðastjórnunarkerfi Norðuráls er vottað samkvæmt alþjóðlega ISO 9001 staðlinum og umhverfis- og öryggisstjórnunarkerfi fyrirtækisins eru vottuð samkvæmt ISO 14001 og ISO 45001 stöðlum. Norðurál er jafnlaunavottað fyrirtæki og er handhafi gullmerkis PWC.

Sérfræðingur rafveitu
Norðurál leitar að öflugum og ábyrgum einstaklingi í starf sérfræðings rafveitu. Verkefnin eru áhugaverð og krefjandi í lifandi starfsumhverfi þar sem metnaður og fagmennska eru í fyrirrúmi.
Starfið heyrir undir tæknisvið fyrirtækisins.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Rekstur háspennubúnaðar í rafveitu Norðuráls með öryggi, skilvirkni og hagkvæmni að leiðarljósi
- Þátttaka í uppbyggingu og viðhaldi háspennubúnaðar
- Tæknilegur stuðningur og ráðgjöf um rafbúnað, hvort sem um er að ræða breytingar, viðgerðir, nýsmíði eða nýfjárfestingar
- Verkefnastýring rekstrarverkefna (eftirlit með öryggi, kostnaði, gæðum og tíma)
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun á sviði rafmangsverkfræði/tæknifræði
- Reynsla af starfi við háspennu er kostur
- Frumkvæði og fagleg vinnubrögð
- Metnaður og sterk öryggisvitund
- Jákvæðni og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Skipulagsfærni og metnaður fyrir umbótum og gæðum
Auglýsing birt7. október 2025
Umsóknarfrestur19. október 2025
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Grundartangahöfn lóð 12, 301 Akranes
Starfstegund
Hæfni
Almenn ökuréttindiÁreiðanleikiHreint sakavottorðJákvæðniMannleg samskiptiMetnaðurNákvæmniSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Faglærður rafvirki óskast
Eir, Skjól og Hamrar hjúkrunarheimili

Rafvirki - Vélstjóri - Vélvirki
Heitirpottar.is

Þjónustusérfræðingur í Fiski
Marel

Rafvirki - Vélvirki - Vélstjóri - Vélfræðingur
Púlsinn ehf.

Deildarstjóri viðhaldsdeildar / Maintenance Manager
Alvotech hf

Field Service Specialist
Marel

Tæknistjóri hjá Norðursalti, framtíðarstarf
Norður & Co ehf.

Verkefnastjóri rafmagns / rafvirki
Rými

Spennandi tækifæri hjá Alvotech / Maintenance Technician
Alvotech hf

Line Drive Supervisor
NEWREST ICELAND ehf.

Robot maintenance technician
NEWREST ICELAND ehf.

Rafvirki / rafeindavirki
Leiðni slf