Húsnæðis- mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS)
Húsnæðis- mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS)
Húsnæðis- mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS)

Sérfræðingur í skipulagsmálum

VILT ÞÚ STARFA Á NÚTÍMALEGUM VINNUSTAÐ SEM LEGGUR ÁHERSLU Á FRAMÚRSKARANDI ÞJÓNUSTU OG ÁRANGURSDRIFIÐ VINNUUMHVERFI?

Skipulagsstofnun hefur nú sameinast HMS í eina öfluga stofnun (Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun) sem ber ábyrgð á ferlinu frá skipulagi til fullbúins mannvirkis ásamt öllu sem tengist manngerðu umhverfi. Með sameiningunni varð til sterkari stofnun með aukna getu til að vinna að þeim spennandi kerfisbreytingum í húsnæðis- og skipulagsmálum sem boðaðar eru í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar.

Við leitum því að metnaðarfullu og kraftmiklu starfsfólki til að efla þjónustu okkar við almenning og hagaðila á sviði skipulagsmála. HMS býður upp á árangursdrifinn vinnustað með skýr markmið, stefnu og gildi sem hjálpa okkur að vinna saman og ná lengra. Þú færð tækifæri til að leggja þitt af mörkum í verkefnum sem skipta sköpum fyrir samfélagið.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ráðgjöf og leiðbeiningar um skipulagsgerð sveitarfélaga, sérstaklega varðandi gerð og afgreiðslu aðal- og deiliskipulags.
  • Ýmis verkefni við miðlun, leiðbeiningar og kynningarmál um skipulagsmál.
  • Þátttaka í vinnu við þróun leiðbeininga, laga og reglugerða á sviði skipulagsmála.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem á sviði skipulagsfræði eða arkitektúrs
  • Þekking og reynsla af skipulagsmálum
  • Þekking og reynsla af starfi innan opinberrar stjórnsýslu er kostur
  • Færni í notkun landfræðilegra upplýsingakerfa
  • Góð greiningarfærni, nákvæm og öguð vinnubrögð
  • Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður til að ná árangri í starfi
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni ásamt jákvæðu og lausnamiðuðu viðhorfi
  • Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
Auglýsing birt21. júlí 2026
Umsóknarfrestur10. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgartún 21, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar