

Sérfræðingur í innri miðlun
Skrifstofa starfsþróunar og starfsumhverfis leitar að sérfræðingi á sviði innri miðlunar í 100% starf. Starfið er nýtt starf og er tilgangur þess að efla upplýsingamiðlun, sameiginlega þekkingu og samheldni innan vinnustaðarins Reykjavíkurborgar.
Meðal verkefna eru stuðningur við nýjan innri samskiptamiðil, þróun og miðlun á innra upplýsingaefni og stuðningur við starfsstaði varðandi nýtingu á innri miðlum fyrir starfsfólk.
Skrifstofan er hluti af mannauðs- og starfsumhverfissviði Reykjavíkurborgar og ber ábyrgð á og veitir ráðgjöf um fræðslu, innri miðlun, heilsueflingu, öryggi og vinnuvernd. Mannauðs- og starfsumhverfissvið er staðsett í Ráðhúsi Reykjavíkur en starfið felur í sér vinnu með sérfræðingum í fræðslu og upplýsingamiðlun á öllum sviðum borgarinnar.
- Þátttaka í innleiðingu á nýjum samskiptamiðli sem tekur við af Workplace.
- Vinna í vefumsjónarkerfi innri vefs, stafrænu fræðslukerfi og nýjum samskiptamiðli.
- Halda utan um samskipti við megintengiliði á sviðum borgarinnar og styðja við uppfærslu og framþróun efnis.
- Vinna að útbreiðslu notkunar innri miðla gegnum kynningarstarf, ráðgjöf og fræðslu.
- Vinna við efnisgerð, textagerð, hönnun og framleiðslu myndefnis, í samræmi við sérþekkingu.
- Hugmyndavinna, markaðssetning og miðlun á fjölbreyttu efni til starfsfólks borgarinnar.
- Þátttaka í vinnuhópum og öðrum verkefnum á sviði mannauðs, áætlanagerðar og þarfagreiningar.
- Aðkoma að stefnumótun um innleiðingu og þróun innri miðlunar.
- Háskólagráða sem nýtist í starfi, menntun á sviði mannauðsmála eða miðlunar er æskileg.
- Reynsla af innri miðlun, samfélagsmiðlavinnu og/eða vefumsjón er skilyrði og önnur mannauðsreynsla æskileg.
- Mjög góð færni í ritun, með ólíkum stílbrigðum og frásagnaformum.
- Reynsla af fræðslukerfum, myndvinnslu eða framleiðslu á stafrænu fræðsluefni er kostur.
- Færni í helstu Office forritum og áhugi á að læra á nýtt fræðslukerfi.
- SharePoint reynsla er kostur.
- Sjálfstæði og frumkvæði.
- Ríkur þjónustuvilji og færni í samvinnu og samskiptum.
- Íslenskukunnátta á stigi C2 og enskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
- 36 stunda vinnuviku í fullu starfi
- Heilsustyrkur, menningarkort og frítt í sund
- Samgöngusamningur
- Gott mötuneyti










