

Sérfræðingur í Hagdeild
Isavia leitar að gagnadrifnum sérfræðingi í hagdeild og fjárstýringu.
Viðkomandi mun vinna náið með stjórnendum og sérfræðingum að greiningu fjárhagsgagna, þróun mælaborða og stuðningi við stefnumótandi ákvarðanir í fjölbreyttu starfi alþjóðaflugvallar. Þetta er einstakt tækifæri til að hafa áhrif á fjármálastjórnun íslenskrar flugstarfsemi og njóta frábærs starfsumhverfis.
Helstu verkefni:
- Þróun og framsetning fjárhagslegra upplýsinga til stjórnenda
- Eftirlit og greining á fjárhagsupplýsingum
- Þátttaka í áætlana- og spágerð ásamt greiningum tengdum rekstrar- og fjárfestingaáætlunum
- Umsjón með fjárhagslegum umbótaverkefnum
- Önnur verkefni í samráði við yfirmann
Hæfniskröfur:
- Háskólamenntun í viðskiptafræði, verkfræði eða tengdum greinum
- Reynsla af framsetningu fjárhagslegra upplýsinga, m.a. í PowerBI
- Reynsla af áætlanagerð fyrirtækja er kostur
- Mjög góð tölvukunnátta og stafræn lausnamiðuð hugsun
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Starfsstöð er í Hafnarfirði með viðveru á Keflavíkurflugvelli.
Isavia er vinnustaður þar sem við sýnum hvert öðru virðingu og erum heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum. Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk, uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu. Saman náum við árangri.
Við bjóðum upp á hollan og góðan mat í mötuneytum okkar, farsímaáskrift og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.
Umsóknarfrestur er til og með 11.janúar 2026.
Frekari upplýsingar um starfið veitir
Guðfinnur S. Jóhannsson forstöðumaður hagdeildar og fjárstýringar, [email protected].
Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið.
Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.
Enska
Íslenska










