
Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa er leiðandi í þjónustu í þágu farsældar barna. Hjá stofnuninni starfa um 150 manns í fjölbreyttum störfum á starfsstöðvum á höfuðborgarsvæðinu, á Hellu og í Eyjafjarðarsveit. Stofnunin heyrir undir Barna- og menntamálaráðuneytið.
Meginverkefni Barna- og fjölskyldustofu er að veita fræðslu, ráðgjöf og handleiðslu á sviði barnaverndar og samþættingar þjónustu í þágu farsældar barna.
Stofnunin leggur mat á væntanlega fósturforeldra, heldur fósturforeldranámskeið ásamt því að veita fósturforeldrum ráðgjöf og stuðning.
Veitir börnum, innan barnaverndar, þjónustu sem lýtur að sérhæfðum meðferðarúrræðum (Stuðlar, Lækjarbakki og Bjargey), fjölkerfameðferð MST og starfsemi Barnahúss.
Auk þess leggur stofan áherslu á fræðilegar rannsóknir og stuðning við þróunar- og rannsóknarstarf ásamt uppsetningu og innleiðingu á samræmdum gagnagrunni í barnavernd á landsvísu.
Meginmarkmið Barna- og fjölskyldustofu:
• Veita framúrskarandi þjónustu í þágu farsældar barna með áherslu á gæðaþróun og stafrænar lausnir.
• Vera í fararbroddi í fræðslu og leiðsögn við þá sem veita börnum og fjölskyldum þjónustu.
• Veita fjölbreytt og sérhæfð úrræði fyrir börn byggð á gagnreyndum aðferðum.
• Stofnunin búi yfir fjölbreyttum starfshóp sem er faglegur og kraftmikill.

Sérfræðingur í fagteymi
Barna- og fjölskyldustofa leitar að öflugum sérfræðingum í fagteymi á nýju sviði búsetu og samþættrar þjónustu. Um er að ræða tvö 100% stöðugildi. Barna- og fjölskyldustofa veitir og styður við þjónustu í þágu barna og stuðlar að gæðaþróun í samræmi við bestu þekkingu og reynslu á hverjum tíma. Störfin heyra undir framkvæmdarstjóra fagteymis. Starfsstöð er í Borgartúni 29 í Reykjavík en starfið getur krafist þess að viðkomandi ferðist um landið.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að taka þátt í afgreiðslu, mati og úrvinnslu umsókna.
- Að veita starfsfólki barnaverndarþjónustu og málastjórum ráðgjöf vegna barna með fjölþættar stuðningsþarfir og umsókna í búsetuúrræði sviðsins.
- Að sinna ráðgjöf, fræðslu og handleiðslu til starfsfólks búsetuúrræða.
- Að veita stuðning, fræðslu og þjálfun til starfsfólks í búsetuúrræðum.
- Þátttaka í þróun og stefnumótun nýrra búsetuúrræða.
- Önnur tilfallandi verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- BA/BS próf sem nýtist í starfi, t.d. þroskaþjálfi, ráðgjafi í hagnýtri atferlisfræði eða sambærilegt.
- Framhaldsnám eða viðbótardiplóma á háskólastigi sem nýtist í starfi.
- Reynsla af störfum með börnum með fjölþættar stuðningsþarfir og fjölskyldum þeirra er kostur.
- Þekking og/eða reynsla af starfi barnaverndar er kostur.
- Þekking á gagnreyndum aðferðum í þjónustu við börn með fjölþættar stuðningsþarfir er kostur.
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð.
- Sveigjanleiki og þjónustulund.
- Góð íslensku og ensku kunnátta í mæltu og rituðu máli.
Auglýsing birt30. apríl 2026
Umsóknarfrestur11. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Borgartún 29, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (7)

Þroskaþjálfi - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær

Þroskaþjálfi í Hraunborg - deild fyrir börn með einhverfu í Hraunvallaskóla
Hafnarfjarðarbær

Tveir þroskaþjálfar 80-100 % starf – Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær

Þroskaþjálfi
Sveitarfélagið Strandabyggð

Velferðarsvið: Deildarstjóri í stoðþjónustu
Akureyri

Þroskaþjálfi - Gerðaskóli
Suðurnesjabær

Sérkennari Borgarholtsskóla
Borgarholtsskóli