
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins (FA)
Fræðslumiðstöðin atvinnulífsins er sérfræði- og þróunarsetur fyrir framhaldsfræðslu á Íslandi. Hlutverk okkar er að veita fólki á vinnumarkaði sem ekki hefur lokið námi á framhaldsskólastigi, tækifæri til að afla sér menntunar eða bæta stöðu sína. Það gerum við meðal annars með því að greina hæfnikröfur starfa, vinna að þróun raunfærnimats, auka framboð á vottuðu námi og efla ráðgjöf um nám og störf. Allt okkar starf miðast að hagsmunum atvinnulífsins og markhópsins.
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins er í eigu SA, ASÍ, BSRB, SÍS og fjármálaráðuneytis. Nánari upplýsingar um Fræðslumiðstöð atvinnulífsins á www.frae.is
Sérfræðingur hjá Hæfnisetri ferðaþjónustunnar
Hæfnisetur ferðaþjónustunnar leitar að hugmyndaríkum, skapandi og öflugum liðsfélaga í starf sérfræðings. Hæfnisetrið er vistað hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins (FA). Sjá nánar á www.hæfni.is
Helstu verkefni og ábyrgð
- Styðja við, þróa og efla hæfni og fagmennsku stjórnenda og starfsfólks í ferðaþjónustu, m.a. á sviði sjálfbærni og stafrænna lausna
- Náin samvinna við atvinnulíf og hagaðila
- Heimsóknir og samskipti til að stuðla að samvinnu um fræðslu og menntun
- Greina fræðsluþarfir fyrirtækja í ferðaþjónustu og þróa lausnir
- Miðlun upplýsinga og efnis á samfélagsmiðla og efnisveitur
- Textagerð og efnissköpun
- Ýmis önnur verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun og/eða rík reynsla sem nýtist í starfi
- Þekking og reynsla af markaðsmálum og samfélagsmiðlum nauðsynleg
- Reynsla af starfi í ferðaþjónustu er kostur
- Haldgóð reynsla af fræðslu- og/eða mannauðsmálum
- Rík samstarfs- og samskiptahæfni
- Frumkvæði, skipulagsfærni og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Mjög góð tölvufærni og þekking á tæknilausnum
- Góð færni, bæði í ræðu og riti, á íslensku og ensku
Auglýsing birt29. apríl 2026
Umsóknarfrestur15. maí 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Skipholt 50B, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Almenn tölvukunnáttaFrumkvæðiMannauðsstjórnunMarkaðsmál
Starfsgreinar
Starfsmerkingar

