Mennta- og barnamálaráðuneyti
Mennta- og barnamálaráðuneyti
Mennta- og barnamálaráðuneyti

Sérfræðingur á sviði íþróttamála

Mennta- og menningarmálaráðuneyti auglýsir laust til umsóknar starf sérfræðings á sviði íþróttamála.

Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf fyrir einstakling sem er nákvæmur í vinnubrögðum, býr yfir mikilli hæfni í mannlegum samskiptum og góðri skipulagshæfni. Leitað er eftir áhugasömum og jákvæðum einstaklingi sem er skipulagður í vinnubrögðum, býr yfir ríkri samskiptahæfni, sýnir frumkvæði og getur starfað sjálfstætt og í teymum.

Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
Reynsla af stefnumótun og verkefnastjórnun á sviði íþróttamála.
Reynsla og þekking á leik- og, grunnskólamálum og æskulýðsmálum er kostur.
Þekking og reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu.
Frumkvæði, lausnamiðuð vinnubrögð og samstarfs- og samskiptahæfni.
Góð greiningarhæfni og geta til að vinna sjálfstætt.
Góð færni í framsetningu og upplýsingamiðlun talaðs og ritaðs máls .
Góð ritfærni og kunnátta í íslensku, ensku og helst einu Norðurlandamáli.
Helstu verkefni og ábyrgð
Annast framkvæmd stjórnarmálefna er heyra undir skrifstofu skóla-, íþrótta- og æskulýðsmála.
Þátttaka í stefnumótun, áætlanagerð, samningagerð og eftirliti í samræmi við lög um opinber fjármál, og önnur lög sem við eiga á málefnasviði skóla-, íþrótta- og æskulýðsmála.
Samningar um rekstur og starfsemi íþróttahreyfingarinnar.
Eftirlit með framkvæmd samninga við einstaka stofnanir, samtök og skóla.
Eftirlit með framkvæmd íþróttasjóðs og umsjón með íþróttanefnd.
Er ráðgefandi í starfi ráðuneytisins um málefni sem tengjast íþróttamálum almennt.
Erlend samskipti á sviði íþróttamála.
Sérfræðingnum getur verið falið að vinna þvert á málefnasvið ráðuneytisins.
Auglýsing birt8. október 2020
Umsóknarfrestur23. október 2020
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Sölvhólsgata 4, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁætlanagerðPathCreated with Sketch.Opinber stjórnsýslaPathCreated with Sketch.SamningagerðPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.StefnumótunPathCreated with Sketch.Verkefnastjórnun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar