
Pharmarctica
Pharmarctica er leiðandi framleiðslu- og þjónustufyrirtæki í verktakavinnu fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Fyrirtækið sérhæfir sig í framleiðslu á snyrtivörum, fæðubótarefnum, hár- og líkamssápum, smyrslum, mixtúrum og sótthreinsandi lausnum.
Pharmarctica sem var stofnað árið 2002, hefur byggt upp mikla þekkingu á sínu sviði og er eina fyrirtækið á landinu sem býður upp á heildarþjónustu í þessum geira. Fyrirtækið býr yfir mannauði og tækjabúnaði sem gerir því kleift að þjónusta mjög breitt svið fyrirtækja, stofnana og einstaklinga. Pharmarctica er vottað GMP (e. good manufacturing practice) og hefur einnig leyfi til framleiðslu á lífrænum snyrtivörum.
Þjónustan sem Pharmarctica býður upp á kemur til af víðtækri þekkingu og tengslaneti við aðra fagaðila. Fyrirtækið getur því komið að þróun eða framleiðslu á hinum ýmsu stigum í samstarfi við önnur fyrirtæki.
Pharmarctica ábyrgist fagleg vinnubrögð og góða þjónustu, þar sem þú getur fengið heildræna lausn fyrir þína vöru.
Sérfræðingur á gæða- og innkaupasviði
Pharmarctica leitar að öflugum og skipulögðum einstaklingi í fjölbreytt og áhugavert starf á gæða- og innkaupasviði.
Starfið er fjölbreytt og felur meðal annars í sér verkefni tengd gæðamálum, innkaupum, rannsóknarstofu og þróunarvinnu. Starfsstöð er á Grenivík.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þátttaka í rekstri og viðhaldi gæðastjórnunarkerfis (QMS)
- Innkaup aðfanga og samskipti við birgja
- Stuðningur við rannsóknar- og þróunarverkefni (R&D)
- HPLC-mælingar og önnur verkefni á rannsóknarstofu
- Gæðaeftirlit og önnur verkefni tengd gæðamálum
- Þátttaka í öðrum verkefnum eftir þörfum
Menntunar- og hæfniskröfur
- BSc-gráða á sviði lífvísinda, efnafræði eða sambærilegra greina
- Reynsla af rannsóknarstofustörfum er kostur
- Reynsla af HPLC og/eða öðrum mæliaðferðum er kostur
- Reynsla af þróunarvinnu og/eða GMP-gæðakerfum er kostur
- Góð tölvukunnátta
- Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í ræðu og riti
- Góð skipulags- og samskiptahæfni
- Nákvæm, ábyrg og sjálfstæð vinnubrögð
Ef þú hefur áhuga á fjölbreyttum verkefnum, átt auðvelt með að tileinka þér nýja hluti og ert tilbúin að taka virkan þátt í daglegum verkefnum fyrirtækisins, þá erum við að leita að þér.
Auglýsing birt12. ágúst 2026
Umsóknarfrestur26. ágúst 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Lundsbraut 2
Starfstegund
Hæfni
Mannleg samskiptiNákvæmniSjálfstæð vinnubrögðSkipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar

