Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Röntgenlæknir á Heilbrigðisstofnun Suðurlands - Tækifæri til að móta þjónustu á Suðurlandi

Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) óskar eftir sérfræðingi í myndgreiningalækningum í fullt starf eða samkvæmt samkomulagi. Um er að ræða ótímabundið starf sem er laust frá 1. júlí 2026 eða eftir nánara samkomulagi.

Við leitum að öflugum sérfræðingi sem vill taka þátt í að efla og þróa myndgreiningarþjónustu innan HSU. Hér gefst tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á uppbyggingu þjónustu, vinnulag og faglegt samstarf í öflugri heilbrigðisstofnun þar sem ákvarðanir eru nálægt starfseminni og stutt er frá hugmynd að framkvæmd.

HSU sinnir mikilvægu hlutverki í heilbrigðisþjónustu landsins og þjónustar stórt og fjölbreytt svæði. Starfið býður upp á fjölbreytt og áhugaverð verkefni, náið samstarf við aðrar sérgreinar og tækifæri til að taka virkan þátt í að byggja upp innri sérfræðiþjónustu og styrkja samfellu í þjónustu við sjúklinga.

Starfsumhverfið einkennist af öflugu teymi, góðu samstarfi og metnaði til áframhaldandi þróunar. Um er að ræða spennandi starf í vaxandi starfsemi þar sem sérfræðingur fær tækifæri til að hafa áhrif og taka þátt í uppbyggingu mikilvægrar þjónustu. Starfið er á Suðurlandi, í fallegu og fjölskylduvænu umhverfi þar sem lífsgæði eru mikil og stutt í fjölbreytta útivist og þjónustu.

Sveigjanleiki varðandi stafshlutfall og fyrirkomulag getur komið til greina samkvæmt samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Greining og úrvinnsla myndrannsókna á sviði myndgreiningalækninga 
  • Klínískt samstarf og ráðgjöf við aðrar starfseiningar og sérgreinar 
  • Þátttaka í skipulagi og þróun myndgreiningarþjónustu innan stofnunarinnar 
  • Bakvaktaþjónusta í fjarvinnu samkvæmt nánari skipulagi 
  • Þátttaka í gæðastarfi, umbótaverkefnum og teymisvinnu 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Fullgilt íslenskt lækningaleyfi 
  • Sérfræðiréttindi í myndgreiningalækningum  
  • Breið almenn þekking og reynsla í myndgreiningu 
  • Kostur er reynsla af ómrannsóknum 
  • Frumkvæði, faglegur metnaður og sjálfstæð vinnubrögð 
  • Góð samskiptahæfni og hæfni til samstarfs 
Auglýsing birt22. apríl 2026
Umsóknarfrestur8. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Árvegur 161836, 800 Selfoss
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar