
Ritari heilbrigðisþjónusta
Meltingarsetrið ehf auglýsir eftir ritara til starfa í 100% starf. Starfið felur í sér innkallanir á sjúklingum í speglanir með símtölum og skilaboðum í gegnum Sögukerfið.
-Krafist er reynslu af notkun Sögu sjúkraskráskerfisins og kunnáttu í Excel, Word og tölvupósti.
-Mjög góð íslenskukunnátta er nauðsynleg og góð enskukunnátta.
-Góðir samskiptahæfileikar eru einnig nauðsynlegir í starfið.
-Góður starfsandi og skemmtilegur vinnustaður.
Nauðsynlegt er að senda ítarlega ferilskrá og að umsækjandi geti bent á meðmælendur til starfsins ef til viðtals kemur.
Umsóknarfrestur er til 25.10. og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Innkallanir sjúklinga í speglanir og viðtöl, tölvupóstsamskipti við sjúklinga og annað starfsfólk. Skráning gagna.
Reynsla af notkun Sögu sjúkraskrákerfisins.
Word, Excel og tölvupóstur.
Íslenska
Enska