
Inkasso
Inkasso var stofnað árið 2010 og er eitt stærsta innheimtufyrirtæki landsins. Haustið 2022 sameinaðist félagið Momentum en þar með varð til enn öflugra fjártæknifyrirtæki á greiðslu- og innheimtumarkaði.

Reynslumikill sölustjóri stórfyrirtækja
Hefur þú sýnt að þú getur lokað sölum til stærstu og kröfuhörðustu fyrirtækja landsins?
Við leitum að afburðamanneskju sem hefur burði leiða flókin sölumál og loka stórum samningum þar sem margir hagsmunaaðilar koma að.
Þú munt eiga samskipti við stjórnendur sem gera miklar kröfur og munt vinna að sölumálum sem taka tíma og krefjast úthalds. Þú munt þurfa að standa undir háum væntingum – aftur og aftur.
Ef þú veist að þú ert í fremstu röð – þá viljum við heyra frá þér!
Helstu verkefni og ábyrgð
- Leiða krefjandi og oft löng söluferli.
- Vera í samskiptum við stjórnendur margra stærstu fyrirtækja landsins.
- Greina flóknar þarfir og áskoranir og umbreyta þeim í verðmætaskapandi lausnir.
- Fá að borðinu hagaðila og sérfræðinga beggja vegna borðs og tryggja jákvæða niðurstöðu.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Að hafa unnið við og náð árangri í flóknum lausnasölu til stærri fyrirtækja er skilyrði.
- Að vera trúverðugur viðmælandi stjórnenda á hæsta stigi.
- Að skilja fjármál, rekstur og hvernig lausnir Inkasso hafa bein áhrif á afkomu fyrirtækja.
- Skýr í hugsun og ákveðni í framkvæmd.
- Taka ábyrgð á niðurstöðum og láta ekki undan þegar sölumál verða krefjandi.
- Bakgrunnur úr fjármálaþjónustu, hugbúnaðarsölu eða ráðgjöf er kostur.
Fríðindi í starfi
- Samskipti við stærstu og áhugaverðustu fyrirtæki landsins.
- Traust og svigrúm til góðra verka.
- Kjör sem endurspegla árangur
Auglýsing birt7. apríl 2026
Umsóknarfrestur21. apríl 2026
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Laugavegur 182, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
DrifkrafturFagmennskaGreiningarfærniMannleg samskiptiSamningagerðSölumennska
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sölufulltrúi - Hlutastarf um helgar
Kúnígúnd

Söluráðgjafi óskast til DS lausna, Hafnafirði.
DS lausnir

Sumarstarf - Söluráðgjafi hjá Bílaumboðinu Unu
Bílaumboðið Una

Sérfræðingur á lýsingasviði S. Guðjónsson
S. Guðjónsson

Sumar- og framtíðarstarf - Söluráðgjafi notaðra bíla
Bílaumboðið Askja

Sölusnillingur óskast
Petmark ehf

Söluráðgjafi Vatn og veitna á Selfossi
Vatn & veitur

Sumarstarf í timbursölu - apríl og maí
BAUHAUS slhf.

Sumar- og hlutastörf í verslun
GG Sport

Sölustjóri - sérhópadeild
Icelandia

Ert þú drífandi sölumaður með brennandi áhuga á tækni?
Tæknivit ehf.

Sölufulltrúar hjá Símanum
Síminn