

Rekstrarstjóri á Oche Reykjavík
Rekstrarstjóri Oche Reykjavík ber ábyrgð á daglegum rekstri staðarins og tryggir að starfsemin sé rekin á faglegan, skilvirkan og arðbæran hátt.
Meginmarkmið starfsins er að skapa framúrskarandi upplifun fyrir gesti, byggja upp öflugan og jákvæðan starfsmannahóp og tryggja að reksturinn standist sett fjárhagsleg og rekstrarleg markmið.
Rekstrarstjóri skal sýna frumkvæði, sjálfstæði og ábyrgð í störfum sínum og vinna náið með framkvæmdastjóra að áframhaldandi uppbyggingu og þróun Oche Reykjavík.
Rekstrarstjóri ber ábyrgð á daglegri stjórnun starfsmanna og því að starfsemin sé ávallt rétt mönnuð.
Helstu verkefni:
-
Ráðningar, þjálfun og móttaka nýrra starfsmanna.
-
Gerð og skipulagning vaktaáætlana með hliðsjón af áætlaðri sölu og bókunum.
-
Tryggja hagkvæma mönnun og halda launakostnaði innan samþykktra viðmiða.
-
Dagleg verkstjórn og eftirfylgni með verkefnum starfsfólks.
- Uppbygging jákvæðs starfsanda og öflugrar liðsheildar.
-
Tryggja að starfsfólk fylgi reglum fyrirtækisins, þjónustustöðlum og verklagsreglum.
Rekstrarstjóri hefur yfirumsjón með daglegri starfsemi Oche Reykjavík.
Helstu verkefni:
-
Tryggja að opnun og lokun staðarins fari fram samkvæmt skilgreindum verklagsreglum.
-
Hafa eftirlit með að allir hlutar starfseminnar séu tilbúnir fyrir gesti.
-
Tryggja gott skipulag og skilvirkni á álagstímum.
-
Hafa yfirumsjón með rekstri bars, eldhúss, þjónustu og leikjasvæða.
-
Tryggja að búnaður, leikkerfi og önnur tæki séu í lagi.
-
Sjá til þess að viðhaldsverkefnum sé sinnt og bilunum fylgt eftir.
-
Tryggja að þrif, hreinlæti og umgengni séu til fyrirmyndar.
- Leysa dagleg rekstrarvandamál með skjótum og faglegum hætti.
Oche Reykjavík byggir á einstakri upplifun þar sem afþreying, matur, drykkir og framúrskarandi þjónusta fara saman.
Rekstrarstjóri skal:
-
Tryggja að gestir fái framúrskarandi þjónustu frá komu til brottfarar.
-
Þjálfa starfsfólk í þjónustu, vöruframboði og upplifun Oche.
-
Fylgjast með þjónustugæðum og grípa strax inn í þegar úrbóta er þörf.
-
Taka á móti ábendingum og kvörtunum gesta og leysa þær á faglegan hátt.
-
Stuðla að jákvæðum umsögnum og endurkomu gesta.
-
Tryggja að starfsfólk sé virkt í að kynna vörur, þjónustu og afþreyingu staðarins.
Íslenska




