
Rafmenn ehf.
Rafmenn ehf. er kröftugt og framsækið fyrirtæki sem veitir alhliða þjónustu í raflögnum á almennum markaði. Eyjafjörður er stærsta markaðssvæðið en fyrirtækið starfar þó í ýmsum verkefnum um allt land.
Fyrirtækið leitast við að viðhalda þekkingu starfsmanna með námskeiðum, endurmenntun og þjálfun til ferkari vaxtar og verðmætasköpunar sem gagnast jafnt starfsmanninum sem og fyrirtækinu. Hjá Rafmönnum starfa nú 35 starfsmenn og margir hverjir með áratuga reynslu og sérfræðiþekkingu í rafmagni.
Áhersla er lögð á vönduð vinnubrögð, góða þjónustu, jákvætt viðmót og góðan starfsanda.
Rafvirkjar í stuði😀
Vegna aukinna verkefna óska Rafmenn ehf. eftir að ráða rafvirkja í fullt starf. Annars vegar er um að ræða störf við almenna raflagnavinnu og hins vegar umsjónarmann með brunakerfum og neyðarlýsingu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Rafvirki - Almenn raflagnavinna
· Almenn raflagnavinna, viðhald og nýlagnir
· Bilanagreining
· Önnur tilfallandi verkefni
Rafvirki - Brunakerfi og neyðarlýsing
· Umsjón með úttektum á brunakerfum og neyðarlýsingu
· Úttekt á brunakerfum og neyðarlýsingu ásamt viðhaldi
· Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sveinspróf í rafvirkjun ásamt tveggja ára stafsreynslu
- Bílpróf
- Almenn tölvukunnátta
- Hreint sakarvottorð
- Hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
- Handlagni og verkvit
- Frumkvæði og skipulag
- Drifkraftur og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Vinnuvélaréttindi er kostur
Auglýsing birt5. febrúar 2026
Umsóknarfrestur25. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Frostagata 6C, 603 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
Rafvirkjun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Kennari í rafiðngreinum
Menntaskólinn á Ísafirði

Rafvirkjar og vélvirkjar
Norðurál

Leggðu línuna til Rarik í sumar! Sumarstörf í framkvæmdaflokkum Rarik víða um land
Rarik ohf.

Snjöll mælaumsjón á Austurlandi - viltu mæla með okkur?
Rarik ohf.

RAFVIRKI / RAFMAGNSSÉRFRÆÐINGUR
atNorth

Tæknistarf á tölvuverkstæði Ofar
Ofar

Sumarstörf hjá Coca-Cola á Íslandi 2026
Coca-Cola á Íslandi

Innviðir framtíðarinnar - Ofar leitar að sérfræðingum í gagnaverum
Ofar

Rafvirkjar, vélvirkjar og vélstjórar / Electricians, Mechanics, and Marine Engineers
Alcoa Fjarðaál

Rafvirki - Eignabyggð
Eignabyggð ehf.

Sérfræðingur í rekstri stjórn- og varnarbúnaðar
Landsnet hf.

Rafvirki í tengivirkjateymi
Landsnet hf.