
Ráðgjafi og Virknistjóri Kerfisbundins Frágangs. (Commissioning)
NORCOM er í örum vexti og leitar að öflugum liðsfélaga til að styrkja teymið. Viðkomandi mun bætast í hóp þriggja fastra starfsmanna og sterkra eigenda sem taka virkan þátt í rekstrinum.
NORCOM sérhæfir sig í hönnunarráðgjöf og frágangi tæknikerfa samkvæmt aðferðarfræði kerfisbundins frágangs (Commissioning). Við sinnum bæði hlutverki ráðgjafa kerfisbundins frágangs fyrir verkkaupa og virknistjóra verktaka, og þarf nýr starfsmaður að vera tilbúinn að starfa í báðum þessum hlutverkum.
Meginstarfssvið NORCOM er innan byggingariðnaðarins en miklir möguleikar eru á að víkka starfsemnia í fjölbryttan iðnað.
Hæfniskröfur
-
Rafmagnsverkfræðingur eða rafmagnstæknifræðingur.
-
Áhugi á virkni tæknikerfa frá forhönnun og allt til loka ábyrgðartíma bygginga.
-
Vilji til að tileinka sér þekkingu á fjölbreyttum tæknikerfum í byggingum og starfa þvert á ýmis fagsvið.
-
Reynslu af öryggiskerfum og/eða stjórnkerfum er kostur.
-
Færni í mannlegum samskiptum og samstarfi við verkkaupa, verktaka og undirverktaka.
-
Áhugi á vinnu á verkstað, prófunum og greiningu frávika.
-
Kerfisbundin vinnubrögð, agi og geta til að sannfæra aðra um mikilvægi skipulags og agaðrar framkvæmdar.
Um starfið
Starfið fer bæði fram á skrifstofu og á verkstað. Mikil áhersla er lögð á fagleg vinnubrögð, skýra samskiptahæfni og getu til að leiða ferla sem tryggja gæði og virkni tæknikerfa.
Verkefni NORCOM
NORCOM vinnur að stórum og langtímaverkefnum sem tryggja stöðugleika næstu árin. Má þar nefna:
-
Nýr Landspítali
- Virknistjóri Stýriverktaka á vegum ÍSTAKS
-
Nýtt fangelsi
- Ráðgjafi kerfisbundins frágangs á vegum Örugg/FSRE
-
Nýtt fjölnotahús KR
- Ráðgjafi kerfisbundins frágangs á vegum Reykjavíkurborgar
-
DABS á Keflavíkurflugvelli
- Commissioning Specialist á vegum ÍAV í samstarfi með NAVFAC
- Mechanical Specialist
- Electrical Specialist
- Building Envelope Spescialist
Auk þess eru ný og spennandi verkefni í uppsiglingu innan gangnavera og landeldis.
NORCOM er einnig með rammasamning við Reykjavíkurborg um öll störf sem tengjast kerfisbundnum frágangi.
- Ráðgjafi kerfisbundins frágangs
- Virknistjóri Verktaka
Báðum þessum stöðum er lýst í handbók kerfisbundins frágangs sem gefin var út af FSRE haustið 2023. Handbók kerfisbundin frágangs.indd
Ráðgjafi kerfisbundins frágangs tekur þátt í undirbúning verkefna með Verkkaupa. Helstu verkefni eru að sjá til þess að verklýsingar og hönnunargögn innihaldi kröfur og lýsingar sem styðja við kerfisbundinn frágang í verkefninu. Ráðgjafinn leiðir hönnuði í gegnum borðprófanir. Á framkvæmdartíma heldur Ráðgjafinn fundi kerfisbundins frágangs og sér til þess að verkefnin fylgi aðferðarfræðinni. Ráðgjafinn sér til þess að kerfislisti sé útbúinn og að áætlun fyrir prófanir liggi fyrir.
Virknistjóri verktaka tekur þátt í hönnun sem er gerð af verktaka. Virknistjóri rýnir gögn og er þáttakandi í borðprófunum hönnunar. Virknistjóri tekur við áætlunum frá Ráðgjafa kerfisbundins frágang og býr til prófunarlýsingar fyrir öll kerfi kerfisbundins frágangs í samvinnu með verktökum. Virknistjóri leiðir verktaka í gegnum prófanir og safnar gögnum frá prófunum. Virknistjóri tekur einnig þátt í að greina frávik.
Ráðgjafi og Virknistjóri taka þátt í reynslurekstri á byggingunni. Halda fundi um virkni kerfa og halda árstíðabundnar prófanir í samvinnu með verkkaupa, notendum, hönnuðum og verktökum.
Rafmagnsverkfræðingur eða Rafmagnstæknifræðingur
Íslenska
Enska


