
Ráðgjafi Lands og skógar á Austurlandi
Land og skógur auglýsir eftir ráðgjafa á Austurlandi með aðsetur á Egilsstöðum. Í starfinu felast fjölbreytt og spennandi verkefni á sviði endurheimtar vistkerfa og sjálfbærrar landnýtingar.
Land og skógur er þekkingar- og þjónustustofnun sem vinnur að uppbyggingu og vernd gróður- og jarðvegsauðlinda á Íslandi og gegnir mikilvægu hlutverki við að bæta ástand þeirra og stuðla að sjálfbærri landnýtingu. Stofnunin sinnir verkefnum á sviði landgræðslu, endurheimtar vistkerfa, nýskógræktar, umhirðu og friðunar skóga með það að markmiði að efla umhverfislegan, samfélagslegan og hagrænan ávinning sjálfbærrar landnýtingar. Stofnunin starfar samkvæmt lögum um landgræðslu nr. 155/2018 og lögum um skóga og skógrækt nr. 33/2019.
- Ráðgjöf, áætlanagerð og eftirlit með verkefnum sem miða að endurheimt vistkerfa og sjálfbærri landnýtingu
- Öflun og skráning upplýsinga um endurheimtaraðgerðir og árangur þeirra
- Vöktun og mat á ástandi gróðurs og jarðvegs og þátttaka í árlegum vöktunarverkefnum
- Fræðsla og ráðgjöf til hagaðila, svo sem bænda og annarra landnotenda, sveitarstjórna, fyrirtækja, skóla og almennings
- Önnur tilfallandi verkefni Lands og skógar í samráði við samstarfsfólk og næsta yfirmann
- BSc-gráða í náttúruvísindum með áherslu á sjálfbæra landnýtingu, búvísindi, vistfræði, umhverfisfræði eða annað nám sem sannanlega nýtist í starfi
- Haldbær reynsla og/eða þekking á verkefnum sem miða að endurheimt vistkerfa, t.d. landgræðslustörfum er kostur
- Þekking og reynsla af landbúnaði er kostur
- Færni í notkun landupplýsingakerfa er kostur
- Reynsla af verkefnastjórn, ráðgjöf og áætlanagerð er kostur
- Jákvæðni og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Gott vald á íslensku og færni til að koma frá sér upplýsingum í ræðu og riti
- Góð almenn tölvukunnátta og færni í Office-forritum
- Gild ökuréttindi á beinskipta fólksbifreið er skilyrði
Styttri vinnuvika og mikill sveigjanleiki í starfi.
Íslenska
Enska