
Vinnumálastofnun
Hlutverk Vinnumálastofnunar
Vinnumálastofnun heyrir undir félagsmálráðuneytið og fer m.a. með yfirstjórn vinnumiðlunar í landinu og daglega afgreiðslu Atvinnuleysistryggingasjóðs, Fæðingarorlofssjóðs, Ábyrgðarsjóðs launa auk fjölmargra annara vinnumarkaðstengdra verkefna.
Ráðgjafi á Suðurnes
Vinnumálastofnun óskar eftir að ráða ráðgjafa á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar á Suðurnesjum.
Ráðgjafi þjónustar atvinnuleitendur og atvinnurekendur með það að markmiði að vinna gegn atvinnuleysi. Í starfi sínu þarf ráðgjafi að geta beitt fjölbreyttum aðferðum og myndað tengsl við ólíka aðila til að vinna að hagsmunum atvinnuleitenda og atvinnulífs.
Starfstöð ráðgjafa er í Keflavík.
Leitað er eftir einstaklingi sem á auðvelt með að tileinka sér gildi Vinnumálastofnunnar: Fyrirmyndarþjónusta; Virðing; Áreiðanleiki.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn ráðgjöf og vinnumiðlun.
- Ráðgjöf við flóttamenn.
- Afgreiðsla og símavaktir.
- Skráningar, upplýsingamiðlun og samskipti við fræðsluaðila.
- Kynningar, starfsleitarfundir og umsjón með námskeiðum og virkniúrræðum.
- Koma á og viðhalda tengslum við fyrirtæki og aðra hagsmunaaðila.
- Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólapróf sem nýtist í starfi s.s. á sviði náms- og starfsráðgjafar, þroskaþjálfunar eða önnur menntun á félags- eða heilbrigðissviði..
- Reynsla af ráðgjöf er æskileg.
- Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og góðir skipulagshæfileikar.
- Góð samskiptahæfni, þjónustulund og metnaður til að skila góðu starfi.
- Góð íslensku- og enskukunnátta, önnur tungumál sem nýtast í starfi eru kostur.
Auglýsing birt16. febrúar 2026
Umsóknarfrestur2. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Krossmói 4a, 260 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
Náms- og starfsráðgjafiÞroskaþjálfi
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (7)

Spennandi hlutastarf í þjónustukjarna.
Mosfellsbær

Ráðgjafi
Vinakot

Stuðningsráðgjafi á Móvað - heimili fyrir börn
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Skemmtilegt starf í sveitinni
Andrastaðir

Stuðningsaðili á Velferðarsviði
Kópavogsbær

Sumarstörf 2026 í Geðþjónustu - viltu vera á skrá?
Landspítali

Viðskiptastjóri – Heilbrigðissvið RV
Rekstrarvörur ehf