Bjargey
Bjargey

Ráðgjafar á Bjargey

Vilt þú taka þátt í krefjandi og gefandi starfi með unglingum? Barna- og fjölskyldustofa auglýsir lausar til umsóknar tvær stöður ráðgjafa á Bjargey, meðferðarheimili fyrir unglinga. Um er að ræða 100% stöður í vaktavinnu sem heyra undir forstöðumann Bjargeyjar. Starfsstöð er að Laugalandsskóla í Eyjafjarðarsveit.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Meðferðarvinna og dagleg samskipti við skjólstæðinga.
  • Samskipti við foreldra og samstarfsaðila.

  • Vinna að tómstundastarfi með skjólstæðingum.

  • Einstaklingsbundinn stuðningur við skjólstæðinga í meðferð, í samvinnu við stjórnendur og fagaðila.

  • Vinna eftir verklagsreglum Bjargeyjar og stefnu stofnunarinnar.

  • Önnur tilfallandi verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla og/eða menntun sem að mati forstöðumanns nýtist í starfi, t.d. í meðferðar-, tómstunda- eða íþróttastarfi.
  • Góð færni í mannlegum samskiptum.

  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulag í vinnubrögðum.

  • Gild ökuréttindi.

  • Hreint sakavottorð.

  • Einnig er lögð áhersla á eftirfarandi persónulegu eiginleika svo sem sveigjanleika, jákvætt viðhorf til skjólstæðinga og áhuga á að starfa með ungmennum.

Auglýsing birt4. júlí 2025
Umsóknarfrestur15. júlí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Laugaland 152511, 601 Akureyri
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar