
Mosfell ehf.
Mosfell ehf. er byggingaverktaki sem sérhæfir sig í tjónaviðgerðum, viðhaldi og framkvæmdum mannvirkja. Fyrirtækið leggur áherslu á fagmennsku, áreiðanleika og góða þjónustu í öllum verkum.
Með skýrum verkferlum og markvissum vinnubrögðum tryggir Mosfell samræmda framkvæmd verkefna og leggur ríka áherslu á öryggi, gæði og góð samskipti við viðskiptavini og samstarfsaðila.
Pípari – framtíðarstarf
Mosfell leitar að duglegum pípulagningarmanni í fullt starf.
Við sérhæfum okkur í viðhaldi, endurbótum og fjölbreyttum verkefnum bæði utan- og innanhúss. Við leggjum áherslu á metnað í því sem við gerum og reynum að viðhalda góðum starfsanda og jákvæðu vinnuumhverfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Fjölbreytt pípulagningarverkefni, bæði tengd viðhaldi og tjónum
- Lekaleit tengd tjónum
- Samskipti við viðskiptavini
- Skila af sér snyrtilegu verki
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sveinspróf í pípulögnum er kostur eða góð reynsla af pípulögnum á Íslandi
- Góð þjónustulund og ánægja af að veita góða þjónustu
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Vandvirkni og hæfni til að vinna vel með öðrum
- Stundvísi og áreiðanleiki
- Góð íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi
- Samkeppnishæf laun
- Fjölbreytt og sjálfstætt starf
- Gott og hvetjandi starfsumhverfi
- Öflugt teymi og jákvæður starfsandi
Auglýsing birt21. júlí 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
EnskaValkvætt
ÍslenskaValkvætt
Staðsetning
Stangarhylur 5, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PípulagningarPípulagnirSamviskusemiSnyrtimennskaÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)



