

Öryggissérfræðingur / Safety Specialist
Alcoa Fjarðaál leitar að öflugum og reyndum einstaklingi í starf öryggissérfræðings í umhverfis-, heilbrigðis- og öryggisteymi. Öryggissérfræðingur stuðlar að góðri öryggis- og heilbrigðis-menningu með leiðsögn, ráðgjöf, þjálfun, fræðslu, og eftirfylgni.
Verksvið eða meginverkefni starfsins
· Þekkja öryggiskröfur fyrirtækisins til hlítar
· Stuðla að því að öryggisstjórnkerfi fyrirtækisins (ISO 45001) sé virkt og að fyrirtækið starfi samkvæmt lögum og reglugerðum er varða öryggismál.
· Leiðbeina / þjálfa starfsmenn í öryggismálum.
· Ber ábyrgð á uppfærslu og viðhaldi öryggismælikvarða og virk þátttaka á daglegum DMS1 og DMS2 fundum
· Þátttaka í starfi og stefnumótun umhverfis-, heilsu- og öryggisteymis.
· Vera fyrirmynd í notkun á öryggisbúnaði og í fylgni öryggisreglna
· Tryggja góð samskipti við öryggissérfræðinga hjá móðurfélaginu og miðlar upplýsingum er varða öryggismál frá móðurfélaginu innan Fjarðaáls.
· Taka þátt í rótargreiningum atvika eftir því sem við á
· Ber ábyrgð á neyðarviðbrögðum á svæði Fjarðaáls ásamt samskiptum við slökkvilið og verktaka sem sér um öryggisgæslu.
· Ber ábyrgð á uppfærslu neyðarviðbragðsáætlana og að æfingar í neyðarviðbrögðum séu framkvæmdar á öllum svæðum.
· Umsjón með MES atvikaskráningakerfi. Rýni UHÖ atvika og úttekta á öllum starfssvæðum.
· Ýmis verkefni sem til falla og snerta öryggi starfsmanna og verktaka
Ábyrgð í starfi
· Hefur yfirsýn yfir öryggiskröfur Alcoa og hvort Alcoa Fjarðaál sé að standast þær kröfur
· Að öryggiskröfum Alcoa sé framfylgt ásamt íslenskum og evrópskum lögum og reglugerðum er varða öryggismál
· Yfirsýn og þátttaka í rótargreiningum atvika og slysa sé þess óskað
Menntun og/eða réttindi sem krafist er
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Reynsla sem krafist er
Mikilvægt er að viðkomandi hafi reynslu og þekkingu á sviði öryggismála.
Hæfni sem krafist er
Sterk öryggisvitund, skipulagshæfileikar, sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og mannleg samskipti
- Gott mötuneyti
- Rútuferðir til og frá vinnu
- Velferðaþjónusta
Íslenska
Enska

