Orkuveitan
Orkuveitan
Orkuveitan

Orkuveitan leitar að sérfræðingi í gæðamálum

Sérfræðingur í gæðamálum ber ábyrgð á að styðja við innleiðingu, viðhaldi og þróun gæðastjórnunarkerfis Orkuveitunnar. Starfið felur í sér náið samstarf við stjórnendur og teymi þvert á Orkuveituna með það að markmiði að efla samræmi, gæði og stöðugar umbætur í starfseminni.

Helstu verkefni og ábyrgð

Í starfinu felst að tryggja virkt og aðgengilegt stjórnunarkerfi og túlka og útfæra kröfur ISO 9001. Viðkomandi tekur virkan þátt í innri og ytri úttektum og fylgir eftir frávikum, styður við samræmingu og þróun ferla og verklags milli eininga og kemur að þróun og viðhaldi rekstrarhandbókar. Einnig felst í starfinu að veita stjórnendum og teymum ráðgjöf og fræðslu í gæðamálum og vinna þvert á einingar að því að efla gæða- og umbótamenningu. Eftirfylgni HACCP kerfis og samræmi við matvælareglugerðir er hluti af starfinu.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Þekking og reynsla af gæðastjórnun, til dæmis ISO 9001
  • Þekking og reynsla af innri og ytri úttektum stjórnunarkerfa
  • Greiningarhæfni og skipulögð vinnubrögð
  • Góð samskiptafærni og hæfni til samstarfs
  • Þekking á HACCP eða matvælaöryggi er kostur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Auglýsing birt18. júní 2026
Umsóknarfrestur28. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Bæjarháls 1, 110 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar